Fræsing og malbikun vega hefur staðið yfir víða líkt og hefð er fyrir á sumrin en þrátt fyrir það eru á höfuðborgarsvæðinu víða djúpar rákir í malbiki, líkt og á Miklubraut við Ártúnsbrekku. Samkvæmt svörum frá Vegagerðinni er malbikun þar lokið í bili, vilji hafi verið fyrir hendi til að gera meira en þörf hafi verið á að forgangsraða miðað við fjármagn sem fæst til viðhalds. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segist hugsi yfir stöðunni.
„Og auðvitað er þetta ekkert einangrað við höfuðborgarsvæðið, þetta er víða um land sem við sjáum þetta. Að okkar mati er þetta svolítið séríslenskt fyrirbrigði, það er spurning hvort menn hafi ekki vandað nóg til undirlagsins í byrjun.“
Þungir bílar myndi hjólför í undirlagið og nagladekk á veturna geri illt verra.
„Og eins og núna við þessar aðstæður getur þetta orðið stórhættulegt. Viðvörunarbúnaður bíla í seinni tíð, eins og skrikvörn og svona, það grípur jafnvel inn í því bílar eru að missa hjólfestu við þessar aðstæður.“
Sem verði svo enn hættulegri þegar það frystir. Runólfur segir það því sæta furðu að ekki eigi að klára að malbika djúpar rásir, meðal annars á Miklubraut.
„Ég bara eiginlega skil ekki slík vinnubrögð því við vitum það og upplifum það hvernig ástandið er og þetta á bara eftir að versna, þannig ég er mjög hissa á þessu verklagi.“
Þetta veldur hættu, að hafa þetta svona?
„Algjörlega og síðan verður pólitíkin að taka við sér. Vegagerðin er bara að framkvæma fyrir þá peninga sem þeir fá til að framkvæma. Pólitíkin skammtar. Pólitíkusar tala með fagurgala um að þeir vilji verja innviðina og bæta umhverfi veganna, þetta er bara lýsandi dæmi um eitthvað sem er ekki verið að vinna við sem skyldi.“