Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, var strikuð út af 41 kjörseðli í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Flokkurinn hlaut flest atkvæði allra lista í kosningunum, eða 1.992. Útstrikanirnar voru á 2% kjörseðla. Það hafði því engin áhrif á stöðu oddvitans.
Næst oftast, eða 34 sinnum, var strikað yfir nafn Heimis Arnar Árnasonar, flokksbróður Berglindar, sem var í 2. sæti á lista Sjálfstæðismanna. 20 sinnum var strikað yfir nafn Hlyns Jóhannssonar, oddvita Miðflokksins á Akureyri.
Að sögn Helgu Eymundsdóttur formanns yfirkjörstjórnar voru útstrikanir í heildina 269 og hafa oft verið fleiri. Engin þeirra varð til þess að væntanlegir bæjarfulltrúar færðust til um sæti.
Allir á lista Viðreisnar strikaðir út einu sinni eða oftar
Flestar voru yfirstrikanirnar á lista Sjálfstæðisflokksins, eða 105, og náðu til 9 frambjóðenda. Óvenjulegt var að á lista Viðreisnar, þar sem aðeins var strikað yfir 36 sinnum, náði það til allra 22 frambjóðendanna. Þá er líklegt að einhverjir kjósendur hafi strikað yfir ansi mörg nöfn í einu.
Svona var skipting útstrikana milli lista:
- (A) Akureyrarlistinn: 19 útstrikanir – strikað yfir 5 frambjóðendur.
- (B) Framsóknarflokkur: 13 útstrikanir – strikað yfir 4 frambjóðendur.
- (C) Viðreisn: 36 útstrikanir – strikað yfir 22 frambjóðendur.
- (D) Sjálfstæðisflokkur: 105 útstrikanir – strikað yfir 9 frambjóðendur.
- (L) L-listinn: 31 útstrikun – strikað yfir 7 frambjóðendur.
- (M) Miðflokkur: 25 útstrikanir – strikað yfir 3 frambjóðendur.
- (S) Samfylking: 19 útstrikanir – strikað yfir 7 frambjóðendur.
- (V) Vinstri græn: 21 útstrikun – strikað yfir 10 frambjóðendur.
Vísur og gamanmál á kjörseðlum – „Allt sömu jólasveinarnir“
Helga segir að venju samkvæmt hafi verið gamanmál, vísur og teikningar að finna á kjörseðlum. Þar hafi verið að finna missmekklegt orðfæri. Einn hafði á orði að frambjóðendur „væru allir sömu jólasveinarnir“.