Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima og einn stofnfélaga hreyfingarinnar, stýrir fundinum en þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu.
Miðað er við að fundurinn klárist um klukkan 18:00 en hann er „undir merkjum samstöðu og trúar á framtíð Íslands sem er best borgið utan Evrópusambandsins,“ er fram kemur í tilkynningunni.
Ræðumenn eru Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra, fyrrverandi þingmaðurinn og ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, presturinn Auður Eir Vilhjálmsdóttir og fyrrverandi frambjóðandi Viðreisnar og lögfræðingurinn Sigríður María Egilsdóttir.
Einnig taka til máls fimm fulltrúar X-Nei, ungs fólks gegn ESB aðild, þau Illugi Gunnarsson, Birta Karen Tryggvadóttir, Anton Sveinn McKee, Hrafn Splidt Þorvaldsson og Þórhildur Katrín Pálsdóttir. Ágúst Þór Brynjarsson brekkusöngvari tekur lagið.
Beint streymi frá fundinum má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan: