Drög að samkomulagi milli Írans og Bandaríkjanna um frið hafa verið birt í íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA í dag. Miðað við þá frétt hafa Íranar fengið flest sem þeir hafa beðið um, en hvorki írönsk né bandarísk yfirvöld hafa staðfest þetta formlega.
Samkvæmt fréttinni fela drögin í sér að öllum stríðsátökum ljúki – líka stríðinu í Líbanon milli Ísraelsmanna og Hezbollah-samtakanna. Íran opni Hormússund en haldi áfram stjórn á því, frystingu á um 24 milljarða dollara eignum Írans verði aflétt og 60 daga frestur verði gefinn til að semja um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir megi áfram auðga úran.
Að auki verði viðskiptaþvingunum á sölu olíu og efnavara frá Íran aflétt og hafnbanninu sem Bandaríkin hafa viðhaldið á Íran í tæpa tvo mánuði verði líka aflétt. Þá þurfi Bandaríkin að greiða Íran minnst 300 milljarða dollara í skaðabætur fyrir tjónið sem þau hafi valdið Írönum í stríðinu.
Tekið er sérstaklega fram að viðræður um varanlegan samning hefjist ekki fyrr en búið sé að aflétta frystingu eignanna og viðskiptaþvingunum auk þess að aflétta hafnbanninu.
Samkomulag gæti náðst fyrir mánudag
Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í gær, sem hann hefur sagt reglulega, að stutt væri í nýjan samning en yfirvöld í Íran voru fljót að segja að enginn samningur væri í höfn.
Bandarískir fjölmiðlar, þar á meðal Bloomberg, CNN og Axios, hafa greint frá því að samningur gæti verði undirritaður fyrir fund G7-ríkjanna sem hefst í Frakklandi á mánudaginn, eða jafnvel meðan á fundinum stendur.
Ishaq Daar utanríkisráðherra Pakistan, sem hefur verið að miðla málum í viðræðunum, fagnaði í færslu á X í morgun því sem áunnist hefði í viðræðunum.
Ísraelar hafa haldið árásum áfram í suðurhluta Líbanon í morgun. Ísraelski herinn sagði í yfirlýsingu í morgun að síðustu vikuna hefðu 310 skotmörk Hezbollah-samtakanna verið hæfð og 80 félagsmenn verið drepnir.