Anthropic hefur því lokað fyrir aðgang allra viðskiptavina að nýjasta og öflugasta líkani fyrirtækisins. Um er að ræða Claude-líkönin Fable 5 og Mythos 5. Þetta segir í tilkynningu frá Anthropic.
Bann bandarískra stjórnvalda nær einnig til erlendra ríkisborgara búsettra í Bandaríkjunum og starfsmanna fyrirtækisins sjálfs með erlendan ríkisborgararétt. Íslenskir notendur Claude hafa vakið athygli á því við fréttastofu að þeir geti ekki lengur notað líkönin.
Anthropic segir í tilkynningunni að forsvarsmenn fyrirtækisins skilji það sem svo að ríkið telji sig hafa fundið aðferð til þess að komast hjá öryggiskerfi líkansins til að hagnýta það til illra verka.