Friðarviðræður standa yfir milli Íran og Bandaríkjanna og vopnahléssamkomulag í gildi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ríkin skiptast á árásum eftir að það tók gildi.
Íranir segja að árangur hafi náðst í viðræðum við Bandaríkin um stríðslok en samkomulag sé „ekki á næsta leiti“.
Þetta sagði Esmail Baqai, talsmaður utanríkisráðuneytisins, eftir að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að hugsanlega gæti samkomulag náðst í dag.
„Það er rétt að við höfum náð niðurstöðu í stórum hluta þeirra mála sem eru til umræðu,“ sagði Baqai í Teheran í dag. „En að segja að þetta þýði að undirritun samnings sé yfirvofandi – enginn getur haldið slíku fram.“
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu en fjölmiðlar hafa haft eftir ónefndum embættismönnum að samkomulagsdrög feli í sér sextíu daga framlengingu á vopnahléi, enduropnun Hormússunds og áætlun um frekari samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf til kynna um helgina að ríkin væru að nálgast samkomulag. Á sama tíma sagðist hann hafa gefið samningamönnum fyrirmæli um að flýta sér ekki.
Rubio virtist fullur bjartsýni þegar hann ræddi við fréttamenn Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, fyrr í dag: „Við héldum að við hefðum einhverjar fréttir að færa í gærkvöldi. Kannski í dag.“
Rubio varaði jafnframt við því að það ætti ekki að „lesa of mikið í þetta“ og bætti við að það „tæki smá tíma að heyra frá Íran“.
Fréttin er í vinnslu.