Stjórnvöld í Kína hafa staðfest opinbera heimsókn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta til landsins í vikunni. Von er á Trump og fylgdarliði hans á miðvikudaginn og stendur heimsóknin fram á föstudag. Búist er við að hann ræði Íran og viðskipti við Xi Jinping forseta Kína. Kínverjar eru ein helsta viðskiptaþjóð Írana með olíu.
Upphaflega stóð til að Bandaríkjaforseti heimsækti Kína í apríl en heimsókninni var frestað vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2017 sem bandarískur forseti fer í opinbera heimsókn til Kína.