Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði samninginn við Íran í Versölum í kvöld í kvöldverðarboði með Emmanuel Macron forseta Frakklands. Íranar hafa staðfest að þeir hafi einnig skrifað undir samninginn.
Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði fjölmiðla að loknum þriggja daga leiðtogafundi G7-ríkjanna í dag. Í morgun greindu fulltrúar ríkjanna frá því að vel hefði gengið á fundinum.
Þar undirrituðu leiðtogarnir sameiginlega viljayfirlýsingu þar sem kallað er eftir friði við Íran, vopnahléi í Líbanon og óhagganlegum stuðningi við málefni Úkraínu og þrýstingi á rússnesk stjórnvöld. Þetta telst til tíðinda þar sem Trump hefur ekki alltaf gengið í takt við hina leiðtogana hvað Úkraínu varðar.
Gagnrýnir árásir Ísraela á Líbanon
Í dag greindu bandarískir embættismenn fjölmiðlum einnig frá fjórtán meginatriðum samningsins milli Bandaríkjanna og Írans. Í samningnum segir meðal annars að ríkin skuldbindi sig til að ná lokasamkomulagi um frið innan sextíu daga. Íran á að opna Hormússund að nýju og Bandaríkin aflétta herkví í sundinu.
Öllum viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gagnvart Íran verður aflétt samkvæmt fyrirframákveðinni tímalínu. Þá segjast ríkin hafa sammælst um að vinna að því að fjarlægja auðgað kjarnorkuefni Írans undir eftirliti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og koma þannig í veg fyrir að Íran búi yfir kjarnorkuvopnum.
Trump ítrekar þó að ef stjórnvöld í Íran gera eitthvað sem honum mislíkar hika Bandaríkin ekki við að grípa aftur til hernaðar.
Trump segir Ísraela vera góða bandamenn Bandaríkjanna og að þeir hafi fengið afrit af samningnum. Á sama tíma gagnrýnir forsetinn árásir Ísraelshers í Líbanon sem hann segir ekki í nokkru samræmi við aðgerðir Hezbollah. Hann segist finna til með íbúum Líbanon sem upplifað hafi helvíti á jörðu síðustu mánuði.
Fyrr í vikunni lýstu írönsk stjórnvöld samkomulaginu sem miklum sigri fyrir þau. Í yfirlýsingu sagði íranski herinn Bandaríkin og Ísrael hafa verið niðurlægð. Þá hafi írönskum hersveitum tekist að niðurlægja óvini sína sem hafi átt þann kost einan að gefast upp.