Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að um 92 milljónir olíutunna úr varabirgðum verði settar á markað til að lægja öldurnar á markaðnum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Bandaríkin samþykktu fyrr á árinu að lána 172 milljónir tunna úr varabirgðunum sem hluta samkomulags við Alþjóðaorkustofnunina þar sem um þrjátíu ríki losuðu samtals um 400 milljónir olíutunna. Bandaríkin hafa þegar boðið um 126 tunnur en olíufyrirtæki hafa aðeins viljað þiggja tvo þriðju hluta þeirra eða um 80 milljónir.