Bandaríkin nota fé og hótanir til að flytja fólk til Afríku
Roberto Mosquera er ættaður frá Kúbu en hefur búið í Flórída frá barnæsku og var stuðningsmaður Trump, þar til hann var handtekinn af ICE og sendur til Afríku, þar sem fjöldi manna situr nú í lagalegu svartholi eftir að Bandaríkin sömdu við ríki um að taka við þeim gegn vegabréfsáritunum og peningum.
Þetta byrjaði með hótunum Bandaríkjanna um að banna vegabréfsáritanir fyrir fjölda Afríkuríkja. Síðan fóru stjórnvöld í Washington að dreifa innflytjendum frá öllum heimshornum til álfunnar, oft með peningagreiðslum til stjórnvalda.
Hinn 43 ára gamli Pheap Rom frá Kambódíu endaði í alræmdu öryggisfangelsi í hinu smáa Esvatíní, sem er stjórnað með harðri hendi af Mswati III konungi. „Ég skildi ekki hvers vegna mér var vísað til Afríku þar sem ég er frá Kambódíu,“ sagði hann við AFP.
Aðrir voru sendir til Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó og Úganda. Enn aðrir hurfu af sjónarsviðinu eftir að hafa verið sendir til Suður-Súdan þar sem stríð geisar.
Bandaríkin nota bann við vegabréfsáritunum og takmarkanir á Afríkuríki til að þvinga þau til að taka við fólki frá öðrum löndum sem hluta af aðgerðum Donalds Trump gegn innflytjendum, sögðu tveir fyrrverandi embættismenn utanríkisráðuneytisins við AFP.
Lögfræðingar segja að brottvísuðu fólki hafi verið kastað í „lagalegt svarthol“, því haldið …