Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa boðað harðar refsiaðgerðir gegn ríkjum og fyrirtækjum sem halda áfram viðskiptum við Íran meðan á stríðinu stendur. Aðgerðunum hefur þó enn ekki verið hrint í framkvæmd.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir hótunina vera viðvörun. Ríki fái ákveðinn frest til að draga úr viðskiptum sínum við Íran áður en refsiaðgerðirnar taki gildi.
Í samtali við fjölmiðla segir Bessent aðgerðirnar geta meðal annars komið til með að beinast að viðskiptum með olíu, rafmyntir og tækni, auk skipaflutninga. Ríki og fyrirtæki sem hjálpi Íran að komast hjá refsiaðgerðum eigi jafnframt á hættu að verða útilokuð frá bandaríska fjármálakerfinu.
Bessent segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa rætt við leiðtoga annarra ríkja og krafist þess að þeir slitu viðskiptatengslum við Íran. Ekki liggur fyrir hvaða ríki það eru.
Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins, gerði lítið úr hótununum. Hann sagði Bandaríkin ekki í aðstöðu til þess að geta takmarkað viðskipti annarra ríkja við Íran.