Að minnsta kosti fimm létust í svefni en klukkan var rétt fyrir fimm að nóttu á staðartíma. Tveir eru alvarlega slasaðir og ellefu með minniháttar meiðsl eftir skjálftann samkvæmt Reuters. Þá eru nokkrir enn fastir í byggingunum sem margar hverjar eyðilögðust í skjálftanum.
Björgunarfólk hefur enn ekki komist að Nagekeo-héraðinu sem er næst miðju jarðskjálftans. Fjarskiptasambandið lá niðri og komast bílar ekki áleiðis vegna skriðufalla á veginum. Aðrir eru að reyna að nálgast svæðið með ferju.
Metra há skjálftaflóðbylgja fylgdi á eftir skjálftanum og var flóðbylgjuviðvörun í gildi í þrjár klukkustundir eftir jarðskjálftann. Tylftir eftirskjálfta hafa fundist á svæðinu.
Á tólfta tímanum að íslenskum tíma reið annar skjálfti af stærðinni 6,8 að stærð norður af eyjunni Súmötru í Indónesíu. Ekki liggur fyrir hvort að einhverjar skemmdir hafi orðið vegna þess.