Það spáir leiðindaveðri fyrir norðan og austan næstu daga, snjókomu og slyddu í innsveitum og til fjalla. Í jökulsárhlíð eru bændur í óðaönn að undirbúa sig fyrir hvellinn. Gular viðvaranir eru í gildi fyrir fyrir allt norðaustanvert landið og þær fyrstu taka gildi á hádegi.
Ásta Hlín Magnúsdóttir fréttamaður var í Hrafnabjörgum 1 í Jökulsárhlíð í gær. Þar er sauðburður langt kominn en töluvert óborið enn.
Þórey Birna Jónsdóttir, bóndi á Hrafnabjörgum, segir að spáin hafi skánað eftir því sem hefur liðið á vikuna. Þó sé slæmt að búist sé við bleytu og kulda næstu fjóra daga. „Við tókum þá ákvörðun að hýsa féð ekki heldur koma út skjóli,“ segir Þórey enda sé það síðasti kostur.
Það er fleira en veðrið sem bændur þurfa að huga að. Sauðburður stendur enn og nærri 70 ær óbornar í Hrafnabjörgum.