Hjörtur hafi síðar haft samband við Guðlaug Sigurjónsson sviðsstjóra og beðist afsökunar. Mbl.is greindi fyrst frá. Málið kom Guðlaugi mjög í opna skjöldu.
„Sérstaklega af því að þetta er fulltrúi meirihlutans, þannig að ég er að vinna með þessu fólki,“ segir hann í samtali við Vísi. Guðlaugur heyrði af atvikinu eftir fundinn og upplýsti í kjölfarið yfirmann sinn.
„Ég sendi á bæjarstjórann og oddvita meirihluta og tilkynnti þeim um þetta og að mér þætti þetta frekar viðurstyggilegt.“ Samfylkingin situr í meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ásamt Framsóknarflokknum og Beinni leið. Hjörtur er einn þriggja fulltrúa Samfylkingarinnar.
Telur málinu lokið
Guðlaugur segir að málinu sé lokið af hans hálfu eftir að Hjörtur hringdi í hann og baðst afsökunar. „Þetta er bara gleymt og grafið.“
Hann gerir athugasemd við að slík harka birtist í sveitarstjórnarumræðunni.
„Mér finnst það svona fulllangt gengið. Það eru aðrar leiðir til að losna við mann ef svo er, annað en að hóta skoti.“
„En þetta er bara eins og þegar menn blasta einhverju út og eru kannski ekki alveg með filterinn á, svona kaffistofuspjall. Þannig að maður skilur það svo sem líka,“ bætir Guðlaugur við.
„Við eigum svo sem í fínu samstarfi, það er ekkert að því.“
Liti öðruvísi út ef um fulltrúa minnihluta væri að ræða
Guðlaugur vildi ekki nefna hjá hvaða verktakafyrirtæki atvikið átti sér stað.
„Auðvitað er þetta verra þegar fulltrúi meirihluta er að segja þetta. Ég myndi alveg skilja ef þetta væri nýr flokkur að koma sér inn og ætla sér í einhverjar hreinsanir, það væri svolítið annað.“
Ekki náðist í Hjört við vinnslu fréttarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.