Ætla má að fjöldi fólks flykkist austur á land um helgina þar sem spáð er steikjandi hita og sól. Veðurstofa Íslands spáir því að hitinn geti náð allt að 24 stigum á Austurlandi á laugardaginn og 27 á sunnudaginn þegar best lætur.
„Helgin leggst mjög vel í okkur og ég held að við séum þokkalega tilbúin að taka á móti fólki. Ég reikna með að það verði töluvert mikið af fólki hérna fyrir austan,“ segir Halla Eyþórsdóttir, annar eiganda Camp east, í samtali við mbl.is.
Veður fyrir langa helgi
Hún segir veðrið fyrir austan vera fallegt í dag og því alveg tilefni fyrir fólk að leggja snemma af stað og taka langa helgi fyrir austan.
„Ég held að Austurlandið sé bara til í þetta,“ segir hún og kveðst hafa lært margt þegar hitabylgja gekk yfir Austurland árið 2020. Hún segir brottflutta sækja mikið austur yfir sumartímann.
„Ef það er einhvern tímann tilefni til að koma austur er það núna,“ segir hún. Það besta við góðviðrið sé hvað allir verði jákvæðir og skemmtilegir.
Bæjarhátíðir um helgina
Lögreglan á Austurlandi undirbýr sig einnig fyrir helgina en gera má ráð fyrir að umferð verði mikil í landshlutanum en þar fara fram bæjarhátíðir í Stöðvarfirði og Vopnafirði.
„Við tökum fagnandi á móti góðu veðri eins og flestir landsmenn, það eru tvær bæjarhátíðir fram undan og lögreglan verður með eftirlit þar,“ segir Þórhallur Árnason, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við mbl.is.
Hann segir að búast megi við að nokkuð umferðaþungt verði fyrir austan.
„Já, það má náttúrulega búast við því út af veðurspánni að fólk sæki hingað austur til okkar, við erum svo sem ekkert óvanir því og tökum fólkinu bara fagnandi.“
Hann hvetur til þess að fólk fari með gát og passi upp á ökuhraðann.
