Dómsmálaráðuneytið auglýsti tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar á föstudag.
Annað embættið er laust þar sem Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari var skipuð dómari við Hæstarétt í síðustu viku. Til stendur að skipa í það embætti hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfi umsækjenda skilar umsögn sinni.
Setja á dómara í hitt embættið tímabundið til 28. febrúar 2029 vegna leyfis dómara. Einnig á að setja í það embætti sem fyrst.