Breski auðkýfingurinn Sir Richard Branson var staddur hér á landi 10.-18. júlí. Í færslu á Instagram og grein sinni dásamar hann landið og ferðina.„Ísland var staður sem ég mun aldrei gleyma. Ég kom heim með auma fætur, fulla minnisbók og nóg að hugsa um. Ég gæti ekki beðið um mikið meira en það.“Branson er þekktastur sem stofnandi Virgin Group og eru auðæfi hans metin á um 2,8 milljarða dala, sem jafngildir 352 milljörðum króna. Hann fagnaði 76 ára afmæli 18. júlí síðastliðinn, á síðasta degi ferðarinnar.
Auðkýfingurinn dásamar vikulangt Íslandsævintýri og kvöld með Höllu forseta: „Ísland var staður sem ég mun aldrei gleyma“