Atli Fannar biðst aftur afsökunar

Atli Fannar Bjarkason, útvarpsmaður í Morgunútvarpinu á Rás 2, hefur beðist opinberlega afsökunar á ummælum sem hann lét falla í þættinum síðastliðinn föstudag um röðun leirtaus í uppþvottavélar.
Í færslu á samfélagsmiðlum segir Atli að af orðum sínum hafi mátt ráða að konur kynnu síður en önnur kyn að raða í uppþvottavélar og að það væri sérstakt vandamál á heimilum landsins. Hann segir þá fullyrðingu ranga og að ekkert sé fjær raunveruleikanum.
„Konur eru fullfærar um að raða í uppþvottavélar og það var vanhugsað af mér að lýsa öðru yfir,“ skrifar hann. Atli bendir jafnframt á að hann hafi sagt „Ég vil ekki vera leiðinlegur“ áður en hann lét ummælin falla, en viðurkennir að það breyti engu um að orð hans hafi verið óviðeigandi.
Hann segir að eftir útsendinguna hafi honum borist fjöldi skilaboða frá körlum sem tóku undir orð hans og að umræðuefnið hafi verið vinsælt meðal grínara á samfélagsmiðlum. Þar séu birt myndbönd sem geri grín að hæfileikum kvenna til að raða í uppþvottavélar. Atli segir sig hafa látið blekkjast af slíkri umræðu og ruglað henni saman við raunveruleikann.
Í afsökunarbeiðninni segist hann ekki aðeins hafa brugðist konum heldur einnig móður sinni, eiginkonu, dóttur og samstarfskonu sinni Gunnu Dís, sem mótmælti ummælunum í beinni útsendingu.
Jafnframt greinir hann frá því að hann hafi farið fram á að óháð úttekt verði gerð á störfum hans í Morgunútvarpinu til að koma í veg fyrir að sambærileg mistök endurtaki sig í framtíðinni. Þá undirstrikar hann að ummælin endurspegli hvorki þann mann sem hann sé né þann sem hann vilji vera.