Atli Fannar Bjarkason, þáttastjórnandi í Morgunútvarpinu á Rás 2, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann biðst afsökunar á hafa sagt að Guðmundur Pálsson sé „ekkert endilega með andlit fyrir sjónvarp“.Guðmundur, sem er best þekktur úr Baggalút, kemur til með að stýra nýjum spurningaþætti á RÚV í vetur ásamt Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, sem er líklega best þekkt úr þáttunum Leitin að upprunanum. Þátturinn mun heita Landsleikarnir og verða sýndir á laugardagskvöldum. Verið er að hrista upp í dagskrá RÚV fyrir veturinn en nýlega var tilkynnt að Kappsmál færu úr loftinu.
Atli Fannar biðst afsökunar á ummælum sínum í morgun