Undir mynd af forsetanum verður að finna eiginhandaráritun hans, sem verður að sjálfsögðu gyllt.
Andlit forsetans má nú þegar finna á aðgangskortum að þjóðgörðum Bandaríkjanna og þá stendur til að gefa út eins dollara mynt með prófílmynd af forsetanum.
Einnig verður gefin út á þessu ári 24 karata gullmynt sem sýnir forsetann halla sér fram á skrifborð, ákveðinn á svip.
Þessu til viðbótar hafa risafánar sem sýna forsetann verið hengdir utan á nokkrar ráðuneytisbyggingar.