Ættstofn einhverrar sjaldgæfustu páfagaukategundar heims, kākāriki karaka, hefur vaxið stórlega síðustu tvö ár, ekki síst vegna dugnaðar parsins Trixie og Nacho sem eiga heima á Nýja-Sjálandi.
Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru þar í landi, hún er í mikilli útrýmingarhættu og tvisvar hefur hún verið talin útdauð. Um það bil 450 fugla er að finna á sérstökum griðastöðum og hættulausum svæðum í náttúrunni.
Starfsfólk griðastaðar í Christchurch kynnti þau Nacho og Trixie hvort fyrir öðru árið 2024 og síðan þá hefur parið eignast saman 55 unga, þar af 33 á þessu ári einu saman. Leigh Percasky, stjórnandi griðastaðarins, hrósar báðum foreldrum í hástert.
Ofurmamman Trixie haldi áfram að verpa og ala upp unga þrátt fyrir að fengitímanum sé lokið þótt best væri að hún tæki sér smá andrými. Pabbinn Nacho hamist eins og rjúpan við staurinn við að útvega móðurinni og ungunum nægt æti svo hungrið sverfi ekki að.
„Þessir fuglar eru í mikilli hættu af völdum rándýra í náttúrunni,“ segir Wayne Beggs, sem fer fyrir verndaráætlun fyrir kākāriki karaka.
Hann kveðst ekki skilja hvert þau Nacho og Trixie sækja alla þessa orku. Turtildúfurnar eigi sannarlega skilið gott frí eftir að hafa lagt svona mikið til viðhalds tegundarinnar síðustu tvö ár.