Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir aukna verðbólgu hafa bein og margvísleg áhrif á neytendur. Hann segir nýjustu mælingu, 5,6% verðbólgu, „því miður“ ekki koma á óvart.
Viðvarandi verðbólgu og tilraunum til að ráða niðurlögum hennar líkir Breki við hringavitleysu.
„Ástandið minnir mann svolítið á Miðgarðsorminn sem étur skottið á sér, eða hvaða aðra líkingu sem menn vilja nota um svona hringavitleysu,“ segir hann.
Breki segir það „stappa nærri galskap“ að gera alltaf það sama og búast við nýrri niðurstöðu. Vísar hann til þess að nota helst stýrivaxtahækkanir til að berjast við verðbólguna.
„Skilgreiningin á galskap“
Í nýjustu mælingum hækkar reiknuð húsaleiga en Breki segir að gera megi ráð fyrir að þetta sé einmitt vegna hækkunar stýrivaxta Seðlabankans, sem eigi að berjast við verðbólguna.
„Þar af leiðir að stýrivextirnir eru þar með að ganga gegn megintilgangi sínum [...] Það að gera alltaf sama hlutinn aftur og aftur og búast við nýrri niðurstöðu stappar nærri galskap – og er eiginlega skilgreiningin á galskap,“ segir hann.
Breki bendir á að aukin verðbólga hafi bein áhrif á neytendur í formi hækkaðs vöruverðs.
„Verðskyn verður að engu. [...] Þetta hefur margvísleg áhrif. Það er ótal margt sem er tengt verðbólgunni á Íslandi. Við erum með verðtryggð lán, verðtryggða húsaleigu og verðtryggða aðra samninga. Þetta hækkar bara og hækkar.“
Afsprengi sveigjanleikans
Breki segir að oft sé talað um að íslenskt hagkerfi búi við mikinn sveigjanleika. „En þetta er afleiðing sveigjanleikans, afsprengi hans, hátt verðbólgustig.“
Sjálfur hvetur hann stjórnvöld og aðra til að halda aftur af verðhækkunum.
„Ég er hræddur um það að verði ekki gripið fast og sterkt inn í strax þá sjái sér einhverjir leik á borði og sleppi af sér beislinu. Gefi verðbólgunni lausan tauminn.“
Hann segir þetta vera eitthvað sem koma verði í veg fyrir að gerist.