Ljósu litirnir klæða hana vel og virtist bjart yfir dömunni í þingsal þrátt fyrir miklar tilfinningar. Þessi litapalletta er einstaklega vinsæl á vorin og var elegant að para gyllt skart saman við hana eins og Áslaug gerði. Hún hefur oft ratað á lista yfir best klæddu þingmennina á þingsetningu og hefur greinilega fundið sinn persónulega stíl á undanförnum árum.
Þá hafa mánuðirnir í New York eflaust veitt henni einhvern tískuinnblástur en stórborgin er þekkt fyrir einstaklega vel klædda borgarbúa. Í Instagram færslu sem Áslaug Arna birti af sér á háskólasvæði Columbia er hún í sama jakka og parar hann við sumarlegar stuttbuxur. Áslaug útskrifaðist jafnframt í þessari flottu dragt og þar sjást skemmtilegir hnappar neðst á skálmum buxnanna.
Fötin eru frá franska tískumerkinu Sandro Paris. Buxurnar eru á 38 þúsund krónur og jakkinn 61400 krónur.
Hægt er að finna svipaðar dragtir víða, þar á meðal hjá sænsku keðjunni Ginu Tricot. Þar er hægt að finna blazer-jakka bæði í hvítu og í kremuðum lit á 12.895 krónur og buxur á 9195 krónur.
Sömuleiðis selur hraðtískurisinn Zara ýmsar dragtir í þessum en hátískumerkið Tom Ford selur kremaðan glæsi-jakka á um 615 þúsund krónur.