Miðstjórn ASÍ lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps næsta árs sem lagt var fram í liðinni viku.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ASÍ.Þar segir að framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hafi skapað, sé með öllu óskiljanleg og kalli á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.
ASÍ með miklar áhyggjur vegna fjárlagafrumvarpsins