Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur dvalið erlendis í sumar þar sem hún hefur unnið að endurkomu TalentBook, verkefnis sem hún setti fyrst á laggirnar árið 2017. TalentBook snýr nú aftur í gjörbreyttri mynd sem gervigreindarknúinn casting-vettvangur fyrir fyrirsætur, leikara, áhrifavalda, dansara, söngvara, íþróttafólk og annað hæfileika- og fagfólk. Markmiðið er að tengja íslenskt hæfileikafólk við fyrirtæki, umboðsskrifstofur, castingstjóra og framleiðsluaðila fyrir verkefni hér heima og erlendis.
Ásdís Rán opnar TalentBook: „Við erum bókstaflega að leita að alls konar fólki“