„Viðskiptafrelsi hefur verið grunnstoð alþjóðlegrar samvinnu frá lokum síðari heimsstyrjaldar enda forsenda friðsamlegrar sambúðar ríkja. Í stað landvinninga til þess að tryggja yfirráð yfir auðlindum kom viðskiptafrelsi. Sem eitt af minnstu fullveðja og fullvalda ríkjum heims er Ísland í ríkari mæli háð frjálsum viðskiptum við umheiminn en flest önnur lönd. Áratugum saman leit Ísland á Bandaríkin sem bandalagsríki sem stæði vörð um þessa grunnhagsmuni Íslands vegna þess að álitið var að þau deildu sömu grunngildum og hagsmunum. Svo virðist ekki vera lengur.“
Arnór Sighvatsson: Að sitja við borðið eða vera á matseðlinum