Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, og Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sitja í nýjum stýrihóp um hagræðingu í Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í erindisbréfi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Stýrihópnum er ætlað að leiða innleiðingu skipulagsbreytinga í stjórnsýslu borgarinnar.
Á fundi borgarráðs í dag var lögð fram tillaga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að samþykkt yrði erindisbréf stýrihóps um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu.
Ari og Pétur eru einu fulltrúarnir úr minnihlutanum sem sitja í stýrihópnum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, gagnrýndi í bókun að fjórir fulltrúar meirihlutans sitji í hópnum en eingöngu tveir fyrir hönd minnihlutans. Fulltrúar úr meirihlutanum eru Hildur, Björg Magnúsdóttir og Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúar Viðreisnar, og Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Betra að allir flokkar ættu fulltrúa í hópnum
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, gagnrýnir að aðeins tveir borgarfulltrúar úr minnihlutanum eigi að sitja í sex manna hagræðingarnefnd Reykjavíkurborgar.
Sanna Magdalena lagði fram bókun á fundinum þar sem hún vekur athygli á því að aðeins tveir fulltrúar minnihlutans verði í hópnum. Í jafn viðamiklu verkefni og þessu hefði farið betur á því að allir flokkar ættu fulltrúa í stýrihópnum.
Markmið verkefnisins er, samkvæmt erindisbréfinu, meðal annars að gera stjórnsýslu Reykjavíkurborgar skilvirkari og draga úr kostnaði við yfirbyggingu. Til að ná því stendur til að gera afmarkaðar og mælanlegar breytingar.
„Rekstur borgarinnar stendur ekki undir nauðsynlegri fjárfestingu og viðhaldi innviða. Kostnaður við miðlæga stjórnsýslu borgarinnar er hærri en landsmeðaltal og hærri en samanburður sveitarfélaga,“ segir í erindisbréfinu.