Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi

Við ljúkum þessari fréttavakt um skotárás á kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins, þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti og ráðherrar hans voru meðal gesta.

Árásarmaður skaut nokkrum skotum við öryggishlið fyrir utan salinn þar sem kvöldverðurinn var haldinn. Bandaríkjaforseti, forsetafrúin Melania, ráðherra í Bandaríkjastjórn og fleiri háttsettir gestir voru fluttir burt í skyndi í öruggt skjól. Enginn gestanna varð fyrir skoti.

Árásarmaðurinn skaut einn leyniþjónustumann en skotið hæfði öryggisvesti mannsins sem slasaðist ekki alvarlega. Árásarmaðurinn var yfirbugaður skjótt og örugglega. Todd Blanche dómsmálaráðherra segir að ákærur verði gefnar út fljótlega.

Bandaríkjaforseti birti síðar um kvöldið myndir af byssumanninum á Truth Social og stuttu síðar upplýstu erlendir fjölmiðlar að maðurinn héti Cole Thomas Allen. Allen er 31 árs að aldri og er frá Torrance í Kaliforníu.

Bandaríkjaforseti hélt blaðamannafund í Hvíta húsinu þar sem hann fór yfir atburði kvöldsins og hrósaði leyniþjónustunni og lögregluyfirvöldum fyrir frábært starf og fyrir að hafa brugðist fljótt og vel við aðstæðum. Hann sagði að Melania forsetafrú væri í áfalli eftir skotárásina.

Aðspurður út í það hvort öryggi hafi verið betra á kvöldverðinum en í Butler í Pennsylvaníu þegar Trump varð fyrir morðtilraun í júlí 2024, sagði Trump svo vera. Í það minnsta hefði öryggisvarsla verið mun betri á kvöldverðinum og því komst byssumaðurinn ekki inn í salinn þar sem kvöldverðurinn var haldinn.

Atburðarásin á galakvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins, þar sem árásarmaður skaut nokkrum skotum, er farin að skýrast.

Trump Bandaríkjaforseti og eiginkona hans Melania, auk ráðherra í Bandaríkjastjórn og ýmissa annarra háttsettra starfsmanna bandaríkjastjórnar, voru gestir á kvöldverðinum, auk fjölda blaðamanna og fjölmiðlafólks. Kvöldverðurinn var svo til nýhafinn og skömmu áður en Trump átti að halda ræðu heyrðust nokkrir skothvellir. Gestir áttuðu sig þó ekki strax á því sem var að gerast.

Árásarmaðurinn skaut 7-8 skotum úr vopni sínu nærri öryggishliðið við innganginn í salnum þar sem kvöldverðurinn fór fram. Gestir skýldu sér undir borðum og lífverðir og öryggisverðir fylgdu Bandaríkjaforseta, forsetafrúnni og öðrum háttsettum gestum burt af vettvangi í öruggt skjól. Árásarmaðurinn skaut einn leyniþjónustumann en skotið hæfði öryggisvesti mannsins sem slasaðist ekki alvarlega. Árásarmaðurinn var yfirbugaður skjótt og örugglega.

Trump birti skömmu síðar færslur á Truth Social þar sem hann mærði viðbrögð leyniþjónustunnar og annarra sem tóku þátt í aðgerðunum. Hann sagðist hafa viljað halda áfram með kvöldverðinn en var ráðlagt frá því. Hann birti einnig ljósmyndir af árásarmanninum á Truth Social. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu sem hófst á þriðja tímanum í nótt að íslenskum tíma ræddi Bandaríkjaforseti atburði kvöldsins við fjölmiðla.

Kvöldverður samtaka blaðamanna Hvíta hússins hefur verið haldinn árlega síðan 1921 og hefð er fyrir því að sitjandi Bandaríkjaforseti sé heiðursgestur kvöldverðarins. Þetta er þó í fyrsta sinn sem Trump þiggur boð á kvöldverðinn sem mun eflaust seint líða gestum kvöldsins úr minni.

The New York Times nafngreinir byssumanninn sem Cole Thomas Allen. Hann er sagður 31 árs að aldri, en ekki 30 ára eins og fyrst kom fram í erlendum fjölmiðlum. Allen er frá Torrance í Kaliforníu.

Haft er eftir saksóknara, Jeanine Pirro, að maðurinn verði ákærður fyrir notkun skotvopna og fyrir árás á alríkislögreglumann með hættulegu vopni. Hún segir að fleiri ákærur fylgi í kjölfarið.

Samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBCvar Allen þungvopnaður haglabyssu, handbyssu og auk þess með marga hnífa á sér. Allen skaut einn leyniþjónustumann en skot hans hæfði öryggisvesti mannsins. Hann var fluttur á spítala til aðhlynningar og er við góða heilsu.

Trump hefur lokið blaðamannafundinum en við höldum áfram að fjalla um málið.

Bandaríkjaforseti segir að Melania forsetafrú sé í áfalli eftir atburði kvöldsins. Hann segir að hann hefði viljað vera áfram á kvöldverðinum en það var ekki talið öruggt.

Todd Blanche dómsmálaráðherra segir að ákærur verði gefnar út fljótlega á byssumanninn. Hann segir lögregluna og leyniþjónustuna hafa brugðist hárrétt við. Hann segir að kvöldið hafi sýnt það besta og versta í landinu, samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC.

Trump sagði að hótelið sem hýsti kvöldverðinn, Washington Hilton hótelið, hefði ekki verið sérlega öruggt miðað við þær aðstæður sem sköpuðust þarna. Hótelið hefur hýst fjölmarga mikilvæga pólitíska viðburði frá opnun árið 1965.

Trump sagði að hann teldi að byssumaðurinn hefði verið einn að verki.

Aðspurður út í það hvort öryggi hafi verið betra á kvöldverðinum en í Butler í Pennsylvaníu þegar Trump varð fyrir morðtilraun í júlí 2024, sagði Trump svo vera. Í það minnsta hefði öryggisvarsla verið mun betri á kvöldverðinum og því komst byssumaðurinn ekki inn í salinn þar sem kvöldverðurinn var haldinn.

Trump birti rétt í þessu myndir af byssumanninum á Truth Social þar sem hann liggur að því er virðist handjárnaður á höndum. Hann sagði í færslu á Truth Social að hann yrði með blaðamannafund í Hvíta húsinu innan skamms. Hann og forsetafrúin, sem og ráðherrar, séu öll heil á húfi. Í samráði við skipuleggjendur kvöldverðarins verði viðburðurinn endurtekinn innan 30 daga.

Lögregluyfirvöld hafa handtekið grunaðan byssumann sem er 30 ára karlmaður frá Kaliforníu samkvæmt heimildum fjölmiðilsins CNN. Einn sérsveitarmaður varð fyrir skoti sem hæfði skothelt vesti hans.

Trump hrósaði leyniþjónustunni og lögregluyfirvöldum fyrir frábært starf og fyrir að hafa brugðist fljótt og vel við aðstæðum í færslu sem hann birti á Truth Social í kvöld. Hann segir að byssumaðurinn hafi verið handtekinn og Trump hafi sagt að dagskráin ætti að halda áfram. Það væri hins vegar lögreglunnar að meta hvort það væri hægt en ef ekki þá yrði kvöldverðurinn bara endurtekinn síðar.

Robert F. Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna var meðal gesta á kvöldverðinum. Hér er honum fylgt burt af vettvangi fyrr í kvöld.

Góða kvöldið. Velkomin á fréttavaktina þar sem við fylgjumst með framvindu mála og uppfærum fréttir af skothvellum sem heyrðust á kvöldverði blaðamanna í Washington þar sem Donald Trump og eiginkona hans Melania voru meðal gesta.

Ráðherrar í Bandaríkjastjórn og háttsettir starfsmenn Hvíta hússins voru einnig á þessum árlega kvöldverði blaðamanna Hvíta hússins sem haldinn var á Washington Hilton hótelinu í Washington.

Ég heiti Brynja Dögg Friðriksdóttir og fylgi ykkur á fréttavaktinni í nótt.

#galakvöldverði #gera #reyndi #árás #árásarmaður

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-04-26-arasarmadur-reyndi-ad-gera-aras-a-galakvoldverdi-bandarikjaforseti-og-radherrar-fluttir-burt-i-skyndi-473670

📰 Aðrar fréttir

Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
📅 25.07.2026 👁️ 0
Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
📅 25.07.2026 👁️ 0
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
The CJP protest has been the most visible expression of public anger against PM Narendra Modi's government in recent years.
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
📅 25.07.2026 👁️ 0
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 1
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 1
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 1
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir

Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir

Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...