Bílaröð myndaðist á ný á vegkafla við Hrútafjarðarheiði en slysið varð skammt þaðan sem harður árekstur varð á sjötta tímanum, eða um klukkustund fyrr. Fólk sem sat í bílum sínum rauk út til aðstoðar þeim sem höfðu lent út af veginum en Höskuldur B. Erlingsson aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi vestra staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Það voru alls þrír í bílunum tveimur en einn slasaðist í árekstrinum og var sá fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi til aðhlynningar og athugunar. Þetta staðfestir Höskuldur en hann segir ekki um lífshættulega áverka að ræða heldur sé einstaklingur lemstraður eftir slysið.
Svipuð slys á sama vegkafla
Tildrög slyssins voru að sögn Höskuldar framúrakstur, rétt eins og þess sem varð um klukkustund áður á svipuðum stað. Bílarnir tveir voru báðir á akstri í suðurátt og er talið að þeir hafi rekist saman þegar þeir tóku báðir fram úr bílalestinni sem hefur verið á Hringveginum í mestallan dag.
Höskuldur biðlar til vegfarenda sem lentu aftur í töfum á sama vegkafla að sýna stillingu og ítrekar mikilvægi þess að sýna þolinmæði í umferðinni. Það borgi sig ekkert að taka fram úr enda sé umferðin eins þung og hún gerist og ökumenn endi alltaf aftur í bílalestinni sem er á leið í bæinn.
Fréttin hefur verið uppfærð.