Rithöfundurinn Andri Snær Magnason hvetur íslenska hægri menn til að taka ábyrgð í loftslagsmálum og vísar til viðvarana Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Í færslu á X á laugardagskvöld beindi hann orðum sínum að þeim sem hann kallar „Hólmsteinsbörnin á Íslandi“.
„Væri nú gott ef Hólmsteinsbörnin á Íslandi hefðu hlustað á sína eigin Grétu T sem kom fram löngu áður en næsta Gréta T fæddist. Það er kominn tími til að hægri menn gyrði sig í brók og taki ábyrgð.“
Væri nú gott ef Hólmsteinsbörnin á Íslandi hefðu hlustað á sína eigin Grétu T sem kom fram löngu áður en næsta Gréta T fæddist. Það er kominn tími til að hægri menn gyrði sig í brók og taki ábyrgð.
— Andri Snær Magnason (@AndriMagnason) 31. október 2026
Andri Snær vitnaði þar í færslu breska rithöfundarins Matthew Todd, sem birti myndskeið af Thatcher. Todd segist vilja minna á að hún hafi varað við því að loftslagsbreytingar af mannavöldum væru jafnstór ógn og kjarnorkustríð.
Hann segist ekki vera aðdáandi Thatcher, raunar „þoli hana ekki“, en mikilvægt sé að fólk á hægri vængnum skilji að loftslagsbreytingar séu ekki vinstrisamsæri. Færsla Todds hefur fengið yfir 750 læk og verið deilt yfir 300 sinnum.
Thatcher sem „Gréta“ hægri manna
Með orðunum „Grétu T“ vísar Andri Snær til sænska aðgerðasinnans Gretu Thunberg, sem fæddist árið 2003. Hann stillir Thatcher þannig upp sem „Grétu“ hægri manna sem hafi komið fram löngu á undan Thunberg.
Thatcher fjallaði meðal annars um hlýnun jarðar í ræðu hjá Royal Society árið 1988 og á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989. Hún var leiðtogi breska Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands árin 1979-1990.
„Hólmsteinsbörnin“ er háðsk vísun til íslenskra hægri manna sem Andri Snær tengir við Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hannes er einn þekktasti talsmaður frjálshyggju hér á landi og mikill aðdáandi Thatcher.
Andri Snær tilgreinir ekki nánar við hverja hann á.
Andri Snær hefur lengi látið sig umhverfis- og loftslagsmál varða. Bók hans Um tímann og vatnið, sem kom út árið 2019, fjallar um loftslagsbreytingar.