Andrea segist ekki sátt við ásakanir Jóns Gnarr og segir vegið að starfsheiðri sínum

Upplýsingarnar komu fram í fundargerð stjórnar RÚV, þar sem haft er eftir útvarpsstjóra að Jón hafi, líkt og aðrir skemmtikraftar, fengið greitt fyrir framkomu sína í þættinum.
Jón neitar, segir þetta rangt og gagnrýnir vinnubrögðin
Jón Gnarr hafnar því alfarið að hafa fengið greitt fyrir atriðið. Í færslu sinni á Facebook segir Jón fullyrðinguna tóma lygi og að hvorki hann né Sigurjón Kjartansson hafi fengið krónu fyrir sitt framlag til þáttarins.
Hann gagnrýnir fréttaflutninginn harðlega og segir að ekki hafi verið leitað til sín eða annarra sem tóku þátt í atriðinu áður en fréttin var birt. Jón segir að slík vinnubrögð standist ekki grunnreglur blaðamennsku, þar sem yfirleitt sé stuðst við fleiri en eina heimild.
Byggt á opinberu gagni og ekki þörf á fleiri heimildum
Andrea segir hins vegar að fréttin hafi verið byggð á fundargerð stjórnar RÚV, sem sé opinbert og undirritað gagn frá opinberu fyrirtæki. Í slíkum tilvikum sé eðlilegt að vinna frétt beint upp úr heimildinni án þess að staðfesta efni hennar með öðrum hætti.
Hún bendir á að í fundargerðinni sé haft eftir útvarpsstjóra sjálfum að greiðslan til Jóns hafi átt sér stað, og að slík heimild sé ein og sér traustur grunnur fréttar. Þá segir hún að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar til að ná tali af Jóni áður en fréttin var birt, en án árangurs. Þó nefnir hún að Jón hafi svaraða blaðamanni Vísis en ekki viljað tjá sig á þeim tíma og tilkynnt að hann myndi svara með yfirlýsingu.
Andreu segir málið því ekki snúast um óvandaða blaðamennsku heldur um efni í opinberu skjali. Ef rangt hafi verið farið með staðreyndir í fundargerðinni, sé það á ábyrgð þeirra sem þar áttu hlut að máli, og að hafi Stefán Eiríksson útvarpsstjóri farið með rangt mál, þá sé ábyrgðin hans en ekki þess sem fjallar um efnið.