Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð þar sem ráðist var gegn netþjónustu sem gekk undir nafninu AudiA6.
Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru íslenskir innviðir notaðir af brotamönnum.
Rannsókn málsins teygir anga sína víða um veröld en netþjónustan er talin hafa hýst peningaþvætti með rafmynt fyrir hátt í fjögur hundruð milljónir evra á árunum 2022 til 2025.
Í fréttatilkynningu Europol segir að netþjónustan hafi verið afar vinsæl meðal netglæpamanna og glæpagengja sem stunda gagnagíslatöku.
Þeir grunuðu í málinu eru einnig taldir standa á bak við netglæpavefinn „Dark2Web“ sem er notaður til að auglýsa ólöglegar þjónustur og tengja saman netglæpamenn um allan heim.
Lögreglan vann málið í samstarfi við ríkissaksóknara og í samvinnu við íslenskt hýsingarfyrirtæki. Tveir fulltrúar frá bandarískri löggæslustofnun komu til Íslands í tengslum við aðgerðina, en enginn var þó handtekinn hér á landi.