Íslensk heimili eru hvött til að eiga nægar birgðir af mat, vatni og öðrum nauðsynjum til að geta komist af í að minnsta kosti þrjá daga án aðstoðar. Þá er landsmönnum ráðlagt að geyma reiðufé heima, eiga rafhlöðuknúið útvarp og búa sig undir að rafmagn, fjarskipti og greiðslukerfi geti legið niðri um tíma.Þetta kemur fram í nýjum upplýsingabæklingi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Verum viðbúin, sem gefinn er út í dag.
Almannavarnir hvetja Íslendinga til að eiga reiðufé og þriggja daga neyðarbirgðir