Útlit er fyrir fínasta veður suðvestan til á landinu þar sem má búast við allt að 17 stiga hita í dag. Veðrinu verður misskipt. Vætutíð verður austan til og þokuloft við norðurströndina svo hiti nær líklega ekki tveggja stafa tölu.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustan og norðan fimm til þrettán metrar á sekúndu í dag. Rigning eða súld um landið austanvert og þokuloft við norðurströndina með hita 3 til 9 stig. Bjart að mestu annars staðar og hiti 8 til 17 stig að deginum, mildast suðvestanlands.
Norðaustlæg eða breytileg átt þrír til tíu á morgun. Þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Hiti breytist lítið.