Sacha Baron Cohen hefur dustað rykið af einum þekktasta karakter sínum, Ali G, eftir 24 ára hlé. Endurkoman hefur hins vegar vakið miklar deilur og hafa aðgerðarsinnar hvatt kvikmyndahús víða um heim til að neita að sýna nýja mynd hans.Ali G: Who Iz I? verður frumsýnd 23. október. Myndin er sett upp eins og heimildarmynd og fylgir Ali G þegar hann reynir að snúa aftur í sviðsljósið. Hún markar jafnframt frumraun Cohens sem leikstjóra.
Allt á suðupunkti vegna nýjustu myndar Sacha Baron Cohen - 37 þúsund tölvupóstar hafa borist