Eftir mikla úrkomu og lægðagang norðvestanlands í febrúar og mars urðu miklar leysingar á hálendinu í lok apríl sem orsakaði stærsta flóð í Blöndu frá því að mælingar hófust.
Um 626 rúmmetrar vatns á sekúndu streymdu inn í Blöndulón 28. apríl en það er um fimmtánfalt rennsli Blöndu við Blönduós á venjulegum degi.
Þetta er mesta innrennsli í Blöndu frá því mælingar hófust eða um tvöfalt stærri en önnur flóð sem gögn eru til um. Yfirborð Blöndulóns hækkaði um 2,7 metra á aðeins tveimur sólarhringum.
Í hægviðri framan af vetri var vatnshæð í Blöndulóni töluvert undir meðallagi þegar flóðið varð og þess varð því ekki vart í byggð. Þá segir í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun að búast megi við því að lónið fari ekki á yfirfall í sumar nema það verði sérstaklega mikil úrkomutíð.
Í lok maí var vatnshæð Blöndulóns 1,9 metrum undir meðallagi.