Á­kvarðanir um að­gengi að Grinda­vík lausar í reipunum - Vísir

Á­kvarðanir um að­gengi að Grinda­vík lausar í reipunum - Vísir

Á­kvarðanir um að­gengi að Grinda­vík lausar í reipunum - Vísir

Þriggja manna starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði í nóvember 2024 skilaði skýrslu sinni í dag. Umboð hans var að rýna í aðgerðir eða aðgerðaleysi viðbragðsaðila í tengslum við jarðhræringarnar á Reykjanesskaga frá því að óvissustigi var lýst yfir 25. október árið 2023.

Almennt segir hópurinn að heilt yfir hafi almannavarnaviðbragðið gengið vel, að frátöldu banaslysi sem varð í janúar 2024 og ákveðnum annmörkum og hnökrum. Telur hann þá sem komu að viðbragðinu hafa unnið þrekvirki.

Hnökrarnir sem hópurinn telur að hafi verið á aðgerðunum tengdust margir ákvörðunum um takmarkanir á aðgengi að Grindavík, hvernig haldið var utan um þær og þeim miðlað til almennings. Illa hafi verið haldið utan um skriflega skráningu á ákvörðunum í skjalakerfum embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Meðalhófs gætt í heildina

Hópurinn segist ekki geta betur séð en að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi á heildina litið gætt meðalhófs þegar hann tók ákvarðanir um að takmarka aðgengi að Grindavík í ljósi hættu og óvissu sem var til staðar. Sérfræðingarnir tóku þó ekki afstöðu til einstakra ákvarðana embættisins.

Í einhverjum tilfellum telur hópurinn að jafnvel hafi verið tilefni til þess að viðhalda takmörkunum lengur eða mæla fyrir strangari takmörkunum en gert var án þess að það færi bersýnilega út fyrir mörk meðalhófs.

Aðgengi að Grindavík var ítrekað takmarkað og svo slakað á þeim aftur eftir hvernig jarð- og eldvirkni þróaðist eftir að bærinn var fyrst rýmdur í nóvember 2023.Vísir/Vilhelm

Nefnir hópurinn dæmi þar sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi talað um óásættanlega áhættu og lífshættulegar aðstæður í Grindavík árið 2024 án þess að hann teldi ástæðu til þess að beita valdheimildum sínum til þess að takmarka aðgengi frekar.

Birti stundum aðeins tilkynningu um takmarkanir á Facebook

Nokkur atriði varðandi tilkynningar og ákvarðanir um aðgengistakmarkanir hefðu þó getað farið betur að mati starfshópsins. Hann geti þannig ekki fullyrt að allar ákvarðanir um aðgangstakmarkanir hafi verið gerðar aðgengilegar á vettvangi stjórnvalda. Hópurinn gerir einnig athugasemd við að tilkynningar um slíkar ákvarðanir hafi verið birtar á mismunandi stöðum.

Í sumum tilfellum hafi lögreglustjórinn á Suðurnesjum aðeins tilkynnt um takmarkanir á aðgengi á Facebook-síðu embættisins en ekki á vettvangi stjórnvalda.

Þessar ákvarðanir hafi falið í sér inngrip í líf og hagsmuni borgara með þýðingarmiklum hætti. 

„Telja verður að það leiði af kröfum réttarríkisins og vönduðum stjórnsýsluháttum að slík fyrirmæli beri að birta svo borgararnir geti kynnt sér efni þeirra og metið réttarstöðu sína. [...]. Í þessu sambandi hefur starfshópurinn í huga að ákvarðanir um aðgangstakmarkanir að Grindavík skertu ekki aðeins stjórnarskrárvarin mannréttindi heldur voru einnig í gildi til lengri tíma.“

Lögreglustjóri sagði fólk á eigin ábyrgð í Grindavík

Við upphaf atburðarásarinnar árið 2024 og fram á árið 2024 byggði lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvarðanir á sínu eigin mati á áhættu sem var hvergi fest formlega á blað. Á þeim tíma var áhættumat fyrir Grindavík enn í þróun en áhætta á svæðinu var metin mjög mikil.

Lögreglustjóri vísaði í ýmsum ákvörðunum um að heimila hópum eða almenningi að koma til og dvelja í Grindavík til þess að fólk gerði það á eigin ábyrgð og ekki væri hægt að tryggja öryggi þess við vissar aðstæður. Þær ákvarðanir virðast hafa byggst á því að þótt ekki væri öruggt að dvelja í bænum væri það ákvörðun hvers og eins sem tæki þá ábyrgð á sjálfum sér.

Hópurinn telur að embætti geti litið til þess að fólk beri ábyrgð á sjálfu sér við ákvarðanir um aðgang við vissar aðstæður. Slíkt mat verði þó að byggja á fullnægjandi upplýsingum og að almenningur hafi aðgang að nákvæmum og skýrum upplýsingum um mögulegar hættur.

„Ég hef verið fráhverfur því að banna fólki eitt og annað en fullorðnir einstaklingar eru auðvitað sjálfbjarga í því að taka ákvarðanir fyrir sig sjálfa.“ - Úlfar Lúðvíksson, þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum 14. ágúst 2024.

Grundvallarforsenda þess að einstaklingar séu látnir bera ábyrgð á eigin áhættu, fari þeir inn á hættusvæði, sé að lykilupplýsingar liggi fyrir til að meta. Það hafi hins vegar ekki verið tilfellið enda hafi almenningur hvorki haft aðgang að huglægu mati lögreglustjórans á áhættunni né formlega áhættumatinu sem var í vinnslu.

„Starfshópurinn telur að lögreglustjóri hafi ekki getað lagt jafn ríka áherslu á eigin ábyrgð og raun ber vitni við þessar aðstæður, þ.e. þegar áhættumöt lágu fyrir sem voru ekki aðgengileg almenningi,“ segir í skýrslu starfshópsins.

Stjórnvöld geti ekki vikið sér undan því að taka erfiðar og óvinsælar ákvarðanir sem kunna að mæta gagnrýni og þrýstingi þegar áhætta er talin óásættanleg enda sé það frumkvæðisskylda yfirvalda að vernda líf og heilsu manna.

Vísaði ábyrgð annað

Leiðbeiningar lögreglustjóra um að fólk færi um Grindavík á eigin ábyrgð koma einnig við sögu í yfirferð starfshópsins um banaslys sem varð þegar starfsmaður verktaka vann við að fylla upp í sprungu við hús í Grindavík í janúar 2024. 

Ekki liggur fyrir hvernig aðgengi verktaka að bænum var háttað þegar slysið varð, hvort tekin hafi verið ákvörðun um að hleypa þeim inn eða hver hafi þá tekið hana. 

Úlfar, þáverandi lögreglustjóri, virðist hafa staðið í þeirri trú að ákvarðanir um framkvæmdir í Grindavík hefðu verið á forræði almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Hann sagði Heimildinni í febrúar 2024 að hann hefði verið upplýstur um framkvæmdirnar en að ákvarðanir hefðu verið á forræði annarra sem ekki var tilgreint hverjir væru.

Þegar starfshópurinn fundaði með eftirmanni Úlfars var skilningur lögreglustjórans að ákvarðanir hefðu verið á hans ábyrgð. Starfshópurinn byggir á því að ákvarðanir um leyfi til framkvæmda hafi verið á lagalegri ábyrgð lögreglustjórans á Suðurnesjum og aðgerða- og vettvangsstjórnunar undir honum.

Ekki fullnægjandi að vara almennt við hættu

Starfshópurinn segir í skýrslunni að skýrt þurfi að vera hver taki ákvarðanir af þessu tagi og að slíkar ákvarðanir séu varðveittar í skjalakerfum stofnana. Einnig þurfi að vera fullnægjandi yfirsýn yfir hverjir vinni að hvaða verkum, hvar og hvenær á hættusvæðum.

Hópurinn ítrekar að lögreglustjóri hefði átt að styðjast við áhættumat í vá þegar hann tók ákvarðanir um aðgengi að Grindavík í stað þess að segja að fólk færi þar um á eigin ábyrgð.

„Að mati starfshópsins er ekki fullnægjandi að vara almennt við því að Grindavík sé hættulegur staður en að byggja að öðru leyti á eigin ábyrgð þegar skriflegt áhættumat er ekki aðgengilegt almenningi og það áhættumat sem var í þróun af hálfu almannavarnadeildar, þótt það kunni að hafa verið ófullkomið eða í vinnslu, var ekki heldur aðgengilegt almenningi.“

Ekki var hægt að leggja mat á hvort upplýsingagjöf yfirvalda til verktakans hefði verið fullnægjandi eða hvort embætti lögreglustjórans hefði gefið leiðbeiningar um að aðgát.

Bæði lögregla og Vinnueftirlit hafa þegar rannsakað banaslysið og beindist úttekt starfshópsins aðeins að hlut viðbragðsaðila eins og lögreglustjóra í aðdraganda slyssins.

Ómálefnalegt að binda hendur fjölmiðla af tillitssemi við íbúa

Ákvarðanir lögreglustjóra um að takmarka aðgengi fjölmiðla að Grindavík voru sama marki brenndar. Þær voru ekki birtar opinberlega nema að hluta til og skriflegar heimildir um þær í opinberum skjalakerfum eru ekki til staðar. Þá hafi ekki alltaf verið ljóst hvort það væri ríkislögreglustjóri eða lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem tæki ákvarðanir.

Þegar ákveðið var að einn fjölmiðill fengi leyfi til þess að fara inn á svæðið og deila efni með öðrum kom ekki fram hvernig fjölmiðlar voru valdir eða hvernig gætt var jafnræðis á milli þeirra.

Starfshópurinn mælir með að fest verði í almannavarnalög ákvæði um takmarkanir á aðgengi fjölmiðla að hættusvæði.

Þá taldi hópurinn að ómálefnalegt hafi verið af lögreglustjóranum á Suðurnesjum að byggja takmarkanir á aðgengi fjölmiðla að Grindavík að mestu leyti á tillitssemi við Grindvíkinga. Minnir hann á að ekki megi skerða stjórnarskrárvarin réttindi fjölmiðlafólks umfram það sem nauðsyn krefur.

#aðgengi #grindavík #lausar #reipunum #ákvarðanir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262882170d/akvardanir-um-adgengi-ad-grindavik-lausar-i-reipunum

📰 Aðrar fréttir

Fara fram á hámarksrefsingu yfir Mancel
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fara fram á hámarksrefsingu yfir Mancel
Saksóknari í Edition-málinu fer fram á hámarksrefsingu, 16 ára fangelsisvist, yfir Ming Ting Mancel. Verjandi hennar fer fram á sýknu.Þetta kom fram í...
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
📅 30.06.2026 👁️ 0
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum Fjár­fest­ingaráætl­un bresku rík­is­stjórn­ar­inn­ar í varn­ar­mál­um fel­ur með­al ann­...
7 steps after an accident on holiday in the Canaries
📅 30.06.2026 👁️ 0
7 steps after an accident on holiday in the Canaries
More than 18 million people book a sunny getaway to the Canary Islands, such as Tenerife or Lanzarote, each year. However, this can turn upside down i...
Fara fram á sex­tán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fara fram á sex­tán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ - Vísir
Þetta kom fram í máli Karls Inga Vilbergssonar héraðssaksóknara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur dómi í morgun. Í dag er sjötti og að óbreyttu síðasti dag...
Tilkynningum um áreitni og stafræn kyferðisbrot fjölgaði mikið
📅 30.06.2026 👁️ 0
Tilkynningum um áreitni og stafræn kyferðisbrot fjölgaði mikið
Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot fjölgaði um 64% og tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um 9% fyrstu þrjá mánuði ársins ...
Fyrst til að innleiða íslenska fullveldisgervigreind - MBL.IS
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fyrst til að innleiða íslenska fullveldisgervigreind - MBL.IS
Sálfræðistofan Líf og sál hefur tekið í notkun Ulf, fyrstu almennu fullveldis gervigreindina á Íslandi, og verður þar með fyrsta íslenska fyrirtækið t...
3.9 magnitude earthquake felt between Gran Canaria and Fuerteventura
📅 30.06.2026 👁️ 0
3.9 magnitude earthquake felt between Gran Canaria and Fuerteventura
A 3.9 magnitude earthquake was recorded in the early hours of this morning (Tuesday) between Gran Canaria and Fuerteventura, with the tremor waking re...
Ísland og Noregur undanþegin verndaraðgerðum ESB vegna stálframleiðslu
📅 30.06.2026 👁️ 0
Ísland og Noregur undanþegin verndaraðgerðum ESB vegna stálframleiðslu
Nýjar verndaraðgerðir Evrópusambandsins vegna stálframleiðslu taka gildi á morgun. Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti þessa ákvörðun hér í Brussel í dag, ...
Gistinóttum fjölgaði lítillega í maí
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gistinóttum fjölgaði lítillega í maí
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæpt prósent í maí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinætur 432 þúsund á landsvísu í maí en ...
Dræm lax­veiði: 
„Menn spá ekki nema spáin sé góð“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Dræm lax­veiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ - Vísir
Vefurinn Angling.is, sem stendur fyrir Landssamband veiðifélaga, birtir vikulega veiðitölur og þar kemur á daginn að hún er á pari við það sem var í f...
Tvö hundruð prósent fleiri til­kynningar um vændi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Tvö hundruð prósent fleiri til­kynningar um vændi - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Embætti ríkislögreglustjóra sem birt hefur nýja skýrslu um tilkynnt kynferðisbrot fyrstu þrjá mán...
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
📅 30.06.2026 👁️ 1
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
Um 95 milljónir Evrópubúa upplifa að minnsta kosti 35 stiga hita í dag, aðallega í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 1
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni Til­kynn­ing­um um kyn­ferð­is­lega áreitni og sta­f­ræn kyn­ferð­is­brot fjölg­a...
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir Ný rannsókn CSPII 2026 á FGM vekur mikilvægar spur...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Belfast disorder: Man charged with attempted murder and arson
📅 30.06.2026 👁️ 0
Belfast disorder: Man charged with attempted murder and arson
The 29-year-old was arrested on Monday in connection with a glider bus which was set on fire on 9 June.
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...