Nick Reiner er rúmlega þrítugur sonur bandaríska leikstjórans Robs Reiners og konu hans, Michele Singer Reiner ljósmyndara. Hann er sakaður um að hafa orðið foreldrum sínum að bana í desember. Hann hefur farið fram á að fá aðgang að sjóði með um 1,5 milljónir bandaríkjadala sem þau stofnuðu í hans nafni skömmu eftir að hann fæddist.
Þau fundust stungin til bana á heimili sínu og sonur þeirra var fljótlega handtekinn grunaður um morðin. Nick Reiner segir í 136 blaðsíðna rökstuðningi að hann hafi ekki getað greitt stjörnulögfræðingnum Alan Jackson himinháan lögfræðikostnað eftir að hann var handtekinn því hann hefði ekki haft aðgang að því fé sem honum bar úr sjóðnum síðustu tvö ár. Jackson sagði sig frá málinu.
Lögmenn Nicks Reiners segja hann hafa átt að fá helming sjóðsins greiddan út á þrítugsafmælinu og afganginn fimm árum síðar, það sé skýrt og skilyrðislaust. „Nick elskaði foreldra sína og er eyðilagður yfir andláti þeirra,“ segir í skjalinu.
Þó séu staðreyndir um örlög þeirra utan þeirrar kröfu sem lögð er fram um sjóðinn. Reiner situr á bak við lás og slá og segist saklaus af ódæðinu. Hann hefur átt í fíknivanda undanfarin ár. Málareksturinn heldur áfram í september og Reiners getur beðið ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn verði hann sakfelldur.