Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann á miðjum aldri fyrir brot á vopnalögum. Hann hafði í vörslu sinni þrjár teygjubyssur, ótilgreint magn af stálkúlum til að skjóta út teygjubyssu, fjórar gúmmíteygjur fyrir slíkt vopn, auk boga og 22 örva.
Lögreglan lagði hald á vopnin 17. september 2024, á dvalarstað ákærða, en aðalmeðferð í málinu verður á morgun í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri. Í ákæru, sem fréttastofa hefur undir höndum, er ekki frekari lýsing á vopnunum eða því hvers vegna ákærði hafði þau í vörslu sinni.
Lögum samkvæmt er bannað að flytja inn eða eiga lásaboga, langboga eða önnur sambærileg vopn nema fólk ætli sér að nota þá til æfinga eða keppna í bogfimi.
Saksóknari fer fram á að vopnin verði gerð upptæk til ríkissjóðs, ákærði hljóti refsingu og greiði allan sakarkostnað. Refsing fyrir brot á vopnalögum getur numið allt að fjögurra ára fangelsisvist. Vegna ítrekaðra vopnalagabrota er þó heimild til að dæma fólk til sex ára fangelsisvistar.