Starfsmaður hjúkrunarheimilisins Grenilundar á Grenivík hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi og fjársvik. Hann á að hafa haft af heimilismanni 780 þúsund krónur.
Í ákæru, sem fréttastofa hefur undir höndum, er málinu lýst þannig að starfsmaðurinn hafi frá 6. maí 2024 til 21. september sama ár svikið út reiðufé af heimilismanni á Grenilundi fimmtán sinnum.
Tók 15 sinnum út af kreditkortinu í hraðbanka
Starfsmaðurinn hafi haft aðgang að kreditkorti mannsins og PIN-númeri og hafi í blekkingarskyni og án heimildar tekið út af því reiðufé í hraðbanka, á bilinu 30-80 þúsund krónur í hvert sinn. Síðasta úttektin var í lok september 2024, þegar starfsmaðurinn tók út fimmtíu þúsund og hafði þá tekið út sjöhundruð og áttatíu þúsund krónur í heildina.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er ákærði kona á þrítugsaldri og brotaþoli eldri maður.
Saksóknari á Norðurlandi eystra höfðar málið og fer fram á refsingu og greiðslu alls sakarkostnaðar. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra 28. október.