Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og segir skamman fyrirvara vera verulegt áhyggjuefni. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðsins þar sem tekið var undir fyrri áhyggjur bæjarstjórnar.
Á fundi bæjarstjórnar í febrúar sagðist hún ekki telja fyrirliggjandi frumvarp og undirbúning málsins uppfylla kröfur sem gerðar væru til vandaðrar löggjafar, heildstæðrar greiningar og raunhæfrar innleiðingar.
Fullnægjandi mat lægi ekki fyrir á áhrifum breytinganna á lýðheilsu, matvælaöryggi, viðbragðsgetu eftirlits, þjónustu við íbúa og rekstraraðila, eða fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög.
„Látið er hjá líða að ávarpa raunverulega hættu á þjónusturofi og slælegu eftirliti sem gæti varað í nokkur misseri,“ sagði í bókun bæjarstjórnar í febrúar.
„Bæjarstjórn telur sérstaklega alvarlegt að fyrirhugað sé að færa tekjuberandi verkefni til ríkisins á meðan kostnaðarsöm verkefni sem ekki gefa af sér tekjur eru skilin eftir hjá sveitarfélögunum, án þess að fyrir liggi skýr mynd af verkaskiptingu, fjármögnun eða ábyrgð.“
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi í lok júní að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og aðildarsveitarfélögin.
Markmiðið væri meðal annars að kortleggja hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögunum eftir gildistöku breytinganna 1. janúar 2027 og tryggja óslitna framkvæmd opinberra eftirlitsverkefna.
Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi um áramótin.