Öllum áhafnarmeðlimum Bandero, skipi hvalaverndunarsinnans Paul Watson, hefur nú verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Fyrir ríkisborgara utan EES felur ákvörðunin í sér endurkomubann á allt Schengen-svæðið, en fyrir EES-borgara takmarkast endurkomubannið við Ísland. Endurkomubann er að lágmarki tvö ár og hefst gildistími þess við brottför.
Áhafnarmeðlimum Bandero birt brottvísun og endurkomubann