Langar raðir mynduðust á Keflavíkurflugvelli í morgun, líkt og síðustu daga. Rétt eins og á fimmtudaginn ná raðirnar út fyrir flugstöðina. Gera má ráð fyrir að hámarksbiðtími sé um 45 mínútur.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir ástæðuna þá sömu og síðustu daga, að mikill fjöldi ferðamanna hafi verið hér á landi í kringum sólmyrkvann 12. ágúst en þeir séu á leið heim til sín. „Við erum með fulla mönnun á öryggisleitarlínum og þær eru allar opnar,“ segir hann.
„Við erum viðbúin því að þetta geti haldið áfram eitthvað í dag og á morgun. Dreifingin á flugum er meiri á morgun en var í dag,“ segir Guðjón. „Í morgun eins og í gær þá rennur þetta skilmerkilega í gegn. Það er ekkert stopp á röðunum og þetta gengur snurðulaust fyrir sig.“
Sumir dagar þyngri en aðrir
Guðjón segir að þegar horft sé til meðalbiðtíma í sumar hafi um 92% farþega ekki þurft að bíða í meira en 10 mínútur og að 97% hafi ekki þurft að bíða lengur en í 15 mínútur.
„Við erum að tala um að þetta séu 3% sem eru að bíða lengur en í korter og við vitum það að það verða alltaf einhverjir dagar á ári sem eru þyngri en aðrir,“ segir hann.