Nokkuð hefur verið fjallað um innbrotahrinu í miðborg Reykjavíkur undanfarið en Vísir sagði meðal annars frá því í vikunni að frá mánaðamótum hafa meira en sextíu innbrot verið tilkynnt miðsvæðis í Reykjavík.
Í dagbók lögreglu kemur fram að við eftirlit í hverfi 104 hafi komið í ljós að fjöldi ökutækja var lagt ólöglega og eiga átján bifreiðaeigendur von á sekt.
Má velta fyrir sér hvort hér hafi verið um að ræða gesti eins fjölmennasta pálínuboðs Íslandssögunnar sem Vísir greindi frá fyrr í dag, en boðið fór fram í Grasagarðinum í Laugardal.
Þá klipptu lögreglumenn í norðurhluta borgarinnar á númeraplötur tveggja bifreiða vegna vangoldinna gjalda.
Að venju var eitthvað um að ökumenn væru stöðvaðir fyrir hraðakstur, fyrir akstur undir áhrifum ávanabindandi efna og fyrir að keyra án ökuréttinda.