Afkoma hins opinbera hefur versnað milli ára samkvæmt bráðabirgðamatiHagstofunnar á afkomunni á fyrsta ársfjórðungi.
Hallinn hjá hinu opinbera nam 23,7 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi en í fyrra kom ríkið út á sléttu fyrstu þrjá mánuði ársins. Þegar upp var staðið varð 120,1 milljarða halli hjá hinu opinbera á síðasta ári.
Hagstofan áætlar að tekjur hins opinbera hafi aukist um 3,8 prósent milli ára, meðal annars vegna aukinna skatttekna og hærri arðgreiðslna frá fyrirtækjum í eigu ríkisins.