Ríkisstjórnin tók daginn snemma með aukafundi í Ráðherrabústaðnum klukkan átta í morgun. Þar kynnti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ramma að fjárlögum 2027 sem var samþykktur á fundinum. Fjárlög verða hins vegar venju samkvæmt kynnt á blaðamannafundi þriðjudaginn 8. september og svo mælir ráðherra fyrir þeim á Alþingi 10. september.
Rammi fjárlaga 2027 samykktur
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að nú liggi ramminn fyrir samþykktur af ríkisstjórn og nú verði unnið við að fylla inní hann til að klára fjárlagafrumvarpið í haust. Grófu línurnar liggi nú fyrir. „Við höfum auðvitað orðið að taka tillit til ákveðinna breytinga sem hafa orðið á hagspám og öðru slíku, en þetta byggir á fjármálaáætlun þó með breytingum sem taka tillit til þess,“ segir Daði Már.
Hallalaus fjárlög
Fjármálaráðherra boðar hallalaus fjárlög næsta árs þannig að þau séu í samræmi við fjármálaáætlun en þó sé niðurstaðan heldur rýmri en þar komi fram. Ráðherra segir að hallalausum fjárlögum verði náð með aðhaldi og skynsamlegum hagræðingaraðgerðum. „Það dreifist nú býsna jafnt það var ekki mikið sem vantaði uppá þannig að menn geta nú séð það í grófum dráttum í fjármálaáætlun en við erum að horfa til þess að gera breiðrar dreifingar á því aðhaldi,“ segir fjármálaráðherra.
Skattahækkanir ekki á borðinu
Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina ekki boða skattahækkanir í næstu fjárlögum umfram það sem hafi komið fram áður. „Þegar rætt er um skattahækkanir er mjög mikilvægt að halda til haga að heildarskattbyrði á Íslandi er að lækka, hefur verið að lækka og heldur áfram að lækka miðað við þennan ramma sem við vorum að setja í dag. Miðað við þetta þá er ríkisstjórnin ekki að boða skattahækkanir á almenning? Nei,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra.