Ævintýri Tinna í dómsal - Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti - DV

Ævintýri Tinna í dómsal - Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti - DV

Penninn ehf. þarf að greiða belgíska félaginu Tintinimagination (TTI) bætur vegna sölu á veggspjöldum Óskars Guðmundssonar þar sem persónur úr Tinnabókunum eru í aðalhlutverki. Taldi dómari í málinu að Penninn hefði brotið gegn höfundar- og sæmdarrétti félagsins sem er með einkarétt á höfundaverki listamannsins Hergé. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 22. apríl sl.

TTI höfðaði mál eftir árangurslausar tilraunir til að ná samkomulagi við Pennann, en félagið hafði náð slíkum samningi við Epal sem einnig seldi veggspjöldin. Tinnasögurnar eru eftir Georges Remi sem var betur þekktur undir listamannanafninu Hergé. TTI náði samkomulagi við ekkju listamannsins um einkarétt á birtingu, aðlögun af teikningum listamannsins ásamt afleiddum réttindum. Samningurinn gildir út árið 2053.

Það var á árinu 2022 sem TTI varð þess áskynja að Penninn væri að selja veggspjöld eftir íslenska listamanninn Óskar Guðmundsson. Verkin voru seld undir heitunum „Tinna-myndir“ og „Tinni á Íslandi“ eða „Tintin in Iceland“. Á árunum 2022-2024 seldi Penninn 522 veggspjöld. TTI hafði samband við Pennann og upplýsti um þá afstöðu sína að hér væri um höfundarréttarbrot að ræða. Penninn var þó ekki sammála og eftir árangurslausar tilraunir til sátta endaði málið fyrir dómi þar sem félagið krafðist 4,8 milljóna í skaða- og miskabætur ásamt því að krefjast þess að dómsniðurstaða yrði birt í prentaðri útgáfu Morgunblaðsins og Heimildarinnar.

Forsenda listrænnar þróunar

Penninn tók til varna í málinu og vísaði meðal annars til þess að samkvæmt íslenskum höfundalögum taki vernd til útfærslu og forms verks en ekki til hugmynda eða viðfangsefna. Þar með sé listamönnum heimilt að sækja innblástur í og nota eldri verk til að skapa nýja og sjálfstæða list. Þetta taldi Penninn vera forsendu allrar listrænnar þróunar. Það sé þekkt að listamenn noti þekktar persónur í nýju samhengi í verk sín og nefndi Penninn meðal annars verk danska listamannsins Ole Ahlberg sem hefur notað Tinna í nýju og fullorðinslegu samhengi sem og verk franska listamannsins Xavier Marabout.

Taldi Penninn að Óskar hefði ekki verið að gera eintök af verkum Hergés heldur notað Tinna og aðrar persónur úr bókunum sem hráefni í nýtt listaverk með sjálfstæðum boðskap. Þetta megi meðal annars sjá af verki þar sem Óskar sýnir Tinna á spjalli við Halldór Laxness við Gljúfrastein, en þar væri klárlega um skopstælingu að ræða sem Penninn telur heimila samkvæmt höfundalögunum. Eins vísaði Penninn til verka Errós þar sem má finna tilvísanir í verk annarra, þar með talið í teiknimyndasöguhetjur.

Fjárhagslegur tilgangur en ekki lögvarin tjáning

Dómari vísaði til þess að Óskar hefði notað persónur Hergés óbreyttar í veggspjöldin og sagðist ekki geta tekið undir þá túlkun að vernd höfundalaga taki hvorki til hugmynda né viðfangsefna. Höfundalögin feli ekki í sér slíka takmörkun á einkarétti höfundar að aðrir geti notað persónurnar óbreyttar án leyfis. Enga meginreglu sé að finna hér á landi um að höfundarréttur sé takmarkaður með vísan til skopstælingar og benti dómari á að Penninn hefði bent á fordæmi fyrir slíkri túlkun. Tilvísanir til erlendra listamanna og erlendra dómsmála hefðu ekki þýðingu í þessu samhengi.

Samkvæmt höfundalögum sé heimilt að vitna í verk ef það er gert í sambandi við gagnrýni, vísindi, almenna kynningu eða í öðrum viðurkenndum tilgangi. Slíkt þurfi þó að vera innan hæfilegra marka og rétt með efni farið. Hvað birt listaverk, myndir og teikningar varðar megi ekki vera um fjárhagslegan tilgang að ræða í slíkum tilvitnunum. Veggspjöld Óskars voru framleidd til sölu og seldust nokkuð vel. Hér hafi því klárlega verið um fjárhagslegan tilgang að ræða. Eins hafi Óskar ekki gætt að sæmdarrétti Hergés þar sem nafn listamannsins er hvergi að finna á veggspjöldunum.

Penninn hafði eins reynt að vísa til eðlis listsköpunar og tjáningarfrelsis listamanna. Dómari tók fram að slík rök gætu ekki haggað fjárhagslegum einkaréttindum höfunda, sérstaklega í máli þessu þar sem allt benti til að veggspjöldin hafi verið sköpuð í fjárhagslegum tilgangi frekar en til tjáningar.

Þar með væri um brot að ræða. Ekki taldi dómari þó rétt að taka kröfur TTI alfarið til greina enda hafi krafa um skaðabætur byggt á söluandvirði veggspjaldanna án tillits til þess hver raunverulegur hagnaður var. Hagnaðurinn á þessum árum nam um 467 þúsund krónum en að mati dómara er það hæfileg fjárhæð skaðabóta. Hvað miskabætur varðar þá hafi verið brotið gegn sæmdarrétti höfundar og þóttu bætur hæfilega nema 250 þúsund krónum fyrir þann lið. Heildarbætur nema því um 717 þúsund krónum en eins þarf Penninn að kosta birtingu dómsins í prentaðri útgáfu Morgunblaðsins.

#höfundarrétti #ævintýri #belgískt #pennanum #stefndi


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/29/aevintyri-tinna-domsal-belgiskt-felag-stefndi-pennanum-fyrir-brot-gegn-hofundarretti/

📰 Aðrar fréttir

Hópur ungmenna réðst á dreng í Hamraborg
📅 29.04.2026 17:59:17 👁️ 2

Hópur ungmenna réðst á dreng í Hamraborg

#hamraborg#ungmenna#hópur#réðst#dreng
Ex-FBI director James Comey surrenders over charge of threatening Trump's life in Instagram post
📅 29.04.2026 17:49:05 👁️ 1

Ex-FBI director James Comey surrenders over charge of threatening Trump's life in Instagram post

#threatening#surrenders#instagram#director#charge
Framsókn boðar Reykjavík á grænu ljósi
📅 29.04.2026 17:42:31 👁️ 1

Framsókn boðar Reykjavík á grænu ljósi

#reykjavík#framsókn#boðar#grænu#ljósi
Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi?
📅 29.04.2026 17:36:32 👁️ 1

Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi?

#framhaldsskólanemi#hvern#þessi#kjósi#ætli
Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar - „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“ - DV
📅 29.04.2026 17:30:16 👁️ 1

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar - „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“ - DV

#lögheimilisskráningar#sveitarfélagið#framboðið#snúist#þurfa
Framlengja gæsluvarðhald í Dettifossmáli
📅 29.04.2026 17:30:03 👁️ 1

Framlengja gæsluvarðhald í Dettifossmáli

#gæsluvarðhald#dettifossmáli#framlengja
Fjórir í varð­haldi vegna Detti­fossmálsins - Vísir
📅 29.04.2026 17:27:10 👁️ 1

Fjórir í varð­haldi vegna Detti­fossmálsins - Vísir

#dettifossmálsins#varðhaldi#fjórir#vegna#vísir
Hernaðaraðgerðir í Íran kostað 25 milljarða Bandaríkjadala
📅 29.04.2026 17:20:15 👁️ 1

Hernaðaraðgerðir í Íran kostað 25 milljarða Bandaríkjadala

#hernaðaraðgerðir#bandaríkjadala#milljarða#kostað#íran
We can't abolish leasehold outright, minister says
📅 29.04.2026 17:10:56 👁️ 1

We can't abolish leasehold outright, minister says

#leasehold#outright#minister#abolish#says
Whale carried by barge out of German waters after weeks stranded on coast
📅 29.04.2026 17:06:23 👁️ 1

Whale carried by barge out of German waters after weeks stranded on coast

#stranded#carried#german#waters#whale
Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt
📅 29.04.2026 17:02:17 👁️ 1

Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt

#austurlöndum#milljónum#stríðið#rúmlega#steypt
Golders Green attack: how it unfolded
📅 29.04.2026 16:50:10 👁️ 1

Golders Green attack: how it unfolded

#unfolded#golders#attack#green
Stephen Fry sues CogX tech conference for £100,000 over fall injuries
📅 29.04.2026 16:45:24 👁️ 1

Stephen Fry sues CogX tech conference for £100,000 over fall injuries

#conference#injuries#stephen#sues#cogx
Sláandi skýrsla um banaslys á Patreksfirði: Björgunarbátur virkaði ekki
📅 29.04.2026 16:43:05 👁️ 1

Sláandi skýrsla um banaslys á Patreksfirði: Björgunarbátur virkaði ekki

#björgunarbátur#patreksfirði#banaslys#sláandi#skýrsla
In five charts - How UAE's exit could affect Opec's influence over the oil price
📅 29.04.2026 16:37:08 👁️ 1

In five charts - How UAE's exit could affect Opec's influence over the oil price

#influence#charts#affect#could#price
Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað - DV
📅 29.04.2026 16:30:31 👁️ 1

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað - DV

#endaþarminum#stjaksetti#nautabana#frægasta#spánar
Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk - Vísir
📅 29.04.2026 16:28:42 👁️ 1

Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk - Vísir

#rafgeymar#ormurinn#dælur#þegar#langi
Málamiðlun tryggi strandveiðar í sumar
📅 29.04.2026 16:24:00 👁️ 1

Málamiðlun tryggi strandveiðar í sumar

#strandveiðar#málamiðlun#tryggi#sumar
Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð - DV
📅 29.04.2026 15:59:20 👁️ 2

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð - DV

#framtíðarkynslóð#samstarfið#heilbrigða#byggir#sterka
Number of squatters in the Canary Islands fell by 10% in 2025
📅 29.04.2026 15:58:00 👁️ 1

Number of squatters in the Canary Islands fell by 10% in 2025

#squatters#islands#number#canary#fell
Mega hjóla gegn einstefnu - Vísir
📅 29.04.2026 15:51:56 👁️ 1

Mega hjóla gegn einstefnu - Vísir

#einstefnu#hjóla#vísir#mega#gegn
Formaður frisbígolfssambandsins svarar ekki gagnrýni um kynjaflokka í íþróttinni
📅 29.04.2026 15:45:04 👁️ 1

Formaður frisbígolfssambandsins svarar ekki gagnrýni um kynjaflokka í íþróttinni

#frisbígolfssambandsins#kynjaflokka#íþróttinni#formaður#gagnrýni
Ný kynslóð lyfjaskammtara á markað - DV
📅 29.04.2026 15:44:00 👁️ 4

Ný kynslóð lyfjaskammtara á markað - DV

#lyfjaskammtara#kynslóð#markað
Greiða hundruð þúsunda fyrir heim­sókn Tinna til Ís­lands - Vísir
📅 29.04.2026 15:37:52 👁️ 1

Greiða hundruð þúsunda fyrir heim­sókn Tinna til Ís­lands - Vísir

#heimsókn#hundruð#þúsunda#íslands#greiða
Bein út­sending: Odd­vitar í Reykja­vík á kosninga­fundi Við­skiptaráðs - Vísir
📅 29.04.2026 15:32:47 👁️ 1

Bein út­sending: Odd­vitar í Reykja­vík á kosninga­fundi Við­skiptaráðs - Vísir

#kosningafundi#viðskiptaráðs#útsending#reykjavík#oddvitar
Kim Jong Un hrósar „hetjunum“ sem sprengja sig í tætlur frekar en að láta Úkraínumenn ná sér - DV
📅 29.04.2026 15:30:05 👁️ 1

Kim Jong Un hrósar „hetjunum“ sem sprengja sig í tætlur frekar en að láta Úkraínumenn ná sér - DV

#úkraínumenn#hetjunum#sprengja#hrósar#tætlur
Ísland vinnur að innleiðingu reglugerðar sem ESB telur Facebook og Instagram brjóta
📅 29.04.2026 15:27:36 👁️ 1

Ísland vinnur að innleiðingu reglugerðar sem ESB telur Facebook og Instagram brjóta

#innleiðingu#reglugerðar#instagram#facebook#ísland
Man jailed after attacking and robbing elderly woman in Lanzarote
📅 29.04.2026 15:20:00 👁️ 1

Man jailed after attacking and robbing elderly woman in Lanzarote

#attacking#lanzarote#robbing#elderly#jailed
Man offered Ukrainian men money to carry out Starmer arson attacks, court hears
📅 29.04.2026 15:01:41 👁️ 1

Man offered Ukrainian men money to carry out Starmer arson attacks, court hears

#ukrainian#offered#starmer#attacks#money
Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu - Vísir
📅 29.04.2026 15:01:37 👁️ 1

Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu - Vísir

#kjördæmastríðinu#repúblikanar#orrustu#vinna#vísir
Seljendur vændis eru oft og tíðum þolendur mansals
📅 29.04.2026 15:00:24 👁️ 2

Seljendur vændis eru oft og tíðum þolendur mansals

#seljendur#þolendur#mansals#vændis#tíðum
Friendly AI chatbots more prone to inaccuracies, study finds
📅 29.04.2026 15:00:06 👁️ 1

Friendly AI chatbots more prone to inaccuracies, study finds

#inaccuracies#friendly#chatbots#prone#study
Friendly AI chatbots more prone to inaccuracies, study suggests
📅 29.04.2026 15:00:06 👁️ 1

Friendly AI chatbots more prone to inaccuracies, study suggests

#inaccuracies#friendly#chatbots#suggests#prone
Sæði yfir 70 gjafa hefur verið tekið úr notkun vegna erfða- og genagalla
📅 29.04.2026 14:54:17 👁️ 1

Sæði yfir 70 gjafa hefur verið tekið úr notkun vegna erfða- og genagalla

#genagalla#notkun#gjafa#hefur#verið
Oil price jumps to $117 after reports of 'extended' Iran blockade
📅 29.04.2026 14:51:46 👁️ 1

Oil price jumps to $117 after reports of 'extended' Iran blockade

#extended#blockade#reports#price#jumps
Police find two bombs in a house in Corralejo
📅 29.04.2026 14:40:00 👁️ 1

Police find two bombs in a house in Corralejo

#corralejo#police#bombs#house#find
Maður ræðst á og stingur gyðinga í London – Myndbönd þegar árásarmaðurinn lætur til skarar skríða og þegar hann er handtekinn
Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig - Vísir
📅 29.04.2026 14:20:14 👁️ 1

Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig - Vísir

#sjálfstæðisflokk#viðreisn#framsókn#fyrir#bætir
Eiríkur fékk nafnlaust bréf – „Einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa mínum í það mál“ - DV
📅 29.04.2026 14:18:12 👁️ 1

Eiríkur fékk nafnlaust bréf – „Einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa mínum í það mál“ - DV

#óviðkunnanlegt#einstaklega#ósmekklegt#nafnlaust#eiríkur
Samfylkingin mælist stærst í Hafnarfirði
📅 29.04.2026 14:15:38 👁️ 1

Samfylkingin mælist stærst í Hafnarfirði

#samfylkingin#hafnarfirði#mælist#stærst
Karli konungi hrósað í hástert fyrir sögulega ræðu
📅 29.04.2026 14:13:46 👁️ 3

Karli konungi hrósað í hástert fyrir sögulega ræðu

#sögulega#konungi#hástert#hrósað#karli
Starmer defends record as Badenoch says he squandered election win
📅 29.04.2026 14:04:43 👁️ 1

Starmer defends record as Badenoch says he squandered election win

#squandered#badenoch#election#starmer#defends
Lögreglan rannsakar söluna á Sóltúni hjúkrunarheimili
📅 29.04.2026 14:02:57 👁️ 1

Lögreglan rannsakar söluna á Sóltúni hjúkrunarheimili

#hjúkrunarheimili#lögreglan#rannsakar#sóltúni#söluna
Nine held after Crewe religious group raids over modern slavery, sexual assault and forced marriage allegations
📅 29.04.2026 14:00:06 👁️ 1

Nine held after Crewe religious group raids over modern slavery, sexual assault and forced marriage allegations

#allegations#religious#marriage#slavery#assault
Trump og Karl konungur eru frændur samkvæmt ítarlegri ættfræðirannsókn
📅 29.04.2026 13:59:59 👁️ 1

Trump og Karl konungur eru frændur samkvæmt ítarlegri ættfræðirannsókn

#ættfræðirannsókn#ítarlegri#konungur#samkvæmt#frændur
Fresh wave of lawsuits filed against OpenAI by Tumbler Ridge victims
📅 29.04.2026 13:50:37 👁️ 1

Fresh wave of lawsuits filed against OpenAI by Tumbler Ridge victims

#lawsuits#against#tumbler#victims#openai
Leiðir á­fram unga miðflokksmenn - Vísir
📅 29.04.2026 13:50:03 👁️ 1

Leiðir á­fram unga miðflokksmenn - Vísir

#miðflokksmenn#leiðir#áfram#vísir#unga
Fugl flaug á línu og olli rafmagnsleysi
📅 29.04.2026 13:49:21 👁️ 1

Fugl flaug á línu og olli rafmagnsleysi

#rafmagnsleysi#flaug#fugl#línu#olli
Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum - Vísir
📅 29.04.2026 13:45:09 👁️ 1

Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum - Vísir

#byltingarvörðurinn#stjórnartaumunum#herðir#tökin#vísir
Harmageddon | Baráttufólk gegn ofbeldi
📅 29.04.2026 13:42:47 👁️ 1

Harmageddon | Baráttufólk gegn ofbeldi

#harmageddon#baráttufólk#ofbeldi#gegn