Björgunarskip voru kölluð út tvisvar í gærkvöld og í nótt vegna fiskibáta sem lentu í vanda. Annars vegar á Breiðafirði í gærkvöld og hins vegar í Húnaflóa snemma í morgun.
Björgunarskipið Björg fór til hjálpar frá Rifi og tók bátinn í tog suður fyrir Snæfellsnes. Þar kom björgunarskipið Kristrún á Bjargi frá Akranesi á móti Björgu og aflvana bátnum.
Sigurður Ingi Grétarsson, skipstjóri á Kristrúnu á Bjargi, segir aðgerðir hafa gengið vel.
„Heyrðu, þetta var bara eins gott og það gerist, sko, bara spegilsléttur sjór og allt gekk vel, við sigldum þrjá tíma út á móti Björginni og svo einhverja sex, sjö tíma yfir. Þetta gekk bara flott,“ segir hann.
Björgunarskipið Húnabjörg á Skagaströnd var svo kölluð út klukkan sex í morgun eftir að kall barst frá trillu. Báturinn hafði dottið út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu og þegar Landhelgisgæslan hafði samband við skipstjórann kom í ljós að vélin var byrjuð að ofhitna. Hann drap á vélinni með því að loka fyrir eldsneytiskerfið. Þá var ekki lengur hætta á að kviknaði í bátnum en ekki var hægt að sigla honum. Húnabjörgin tók bátinn í tog og kom honum til hafnar á Skagaströnd.