„Auðvitað er það ekkert launungarmál að það gekk yfir óveður meðan á þessu stóð í gærkvöldi og svo sem eins á föstudagskvöldið líka. Þannig að aðstæður í firðinum almennt voru mjög óvenjulegar.“
Þetta segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, einn skipuleggjenda Bræðslunnar sem haldin var á Borgarfirði eystri um helgina.
Hann segir að þrátt fyrir illviðri hafi tónleikarnir farið vel fram í gærkvöldi. Áskell segir að fólk hafi gert ráðstafanir og hjálpast að.
„Þetta hafði engin áhrif á stemninguna inni í húsinu í gærkvöldi, síður en svo. Fólk var inni allan tímann og naut tónlistar frá upphafi til enda í staðinn fyrir að vera að kíkja út annað slagið því það var ekkert útiveður.“
Björgunarsveitin Sveinungi var fólki innan handar í óveðrinu. Formaðurinn Bergvin Snær Andrésson segir að vel hafi gengið á svæðinu. Sveitin aðstoðaði gesti sem þurftu að koma sér fyrir á yfirbyggðum fótboltavelli á staðnum.
„Það voru margir sem voru í kúlutjöldum sem héldu ekki miklum veðrum og vindum þannig að þau komu sér vel fyrir þarna inni,“ segir hann.
Samkvæmt lögreglunni á Austurlandi brutust tvenn slagsmál út í þorpinu í nótt og tveir þurftu aðhlynningu. Þá kom einnig til slagsmála í fyrrinótt.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að það sé þó óvenjulegt að slagsmál komi upp á hátíðinni sem hafi í áranna rás farið vel fram.