Aðildarviðræður við ESB þá og nú

Aðildarviðræður við ESB þá og nú

Aðildarviðræður við ESB þá og nú

Aðildarviðræður við ESB þá og nú

Í þess­ari þriðju grein um Evr­ópu­tengsl Ís­lands eru kring­um­stæð­ur fyrstu at­rennu að­ild­ar­við­ræðna á ár­un­um 2009–2013 born­ar sam­an við þær að­stæð­ur sem myndu ríkja ef að­ild­ar­við­ræð­ur við Evr­ópu­sam­band­ið yrðu hafn­ar á ný í haust.

Aðstæður í aðdraganda ákvörðunar íslenzkra stjórnvalda um að sækja um aðild að Evrópusambandinu (ESB) um mitt ár 2009 voru um margt ærið sérstakar og ólíkar aðstæðum nú, enda kom hún beint í kjölfarið á hruni fjármálakerfisins og búsáhaldabyltingunni svonefndu. Ótvírætt er þó að meirihluti kjósenda studdi ákvörðunina á þeim tíma sem hún var tekin (vorið/sumarið 2009), jafnvel þótt ákvörðunin um að hefja viðræður hafi ekki verið borin undir formlega þjóðaratkvæðagreiðslu í það sinn.

Þegar hlé var gert á aðildarviðræðunum árið 2013 höfðu 27 samningskaflar verið opnaðir af þeim 33 efnisköflum sem viðræðunum var skipt upp í. Að auki hafði Ísland lagt fram samningsafstöðu í tveimur köflum til viðbótar. Alls hafði viðræðum vegna 11 samningskafla verið lokið, nánar tiltekið hafði þessum köflum verið lokað til bráðabirgða enda er aðildarviðræðum ekki lokið fyrr en öllum samningsköflum hefur verið lokað. En: Ekki hafði reynzt unnt að opna þá kafla sem almennt voru taldir veigamestir í pólitísku tilliti, þ.e.  sjávarútvegur (kafli 13) og landbúnaður og dreifbýlisþróun (11. kafli). Aðrir veigamiklir kaflar eins og t.d. 17. kafli um efnahags- og peningamál (þ.m.t. myntbandalag) höfðu verið opnaðir, en viðræðum um þá ekki lokið. 

Að ekki skyldi hafa náðst að opna kaflana um sjávarútveg og landbúnað má ótvírætt telja mesta veikleika fyrstu atlögunnar að aðildarviðræðum, þ.e. að heilt kjörtímabil Alþingis skyldi ekki hafa dugað til að komast svo langt í ferlinu. Og þar sem viðræður um þessa kafla hófst aldrei fengust aldrei áreiðanleg svör við því á hvaða forsendum Íslandi hefði getað boðizt innganga í sambandið varðandi þessi lykilmálefni, sjávarútveg og landbúnað. 

En hvað er þá það helzta sem er frábrugðið í aðstæðunum þá og nú? 

Staðan þá

Bæði alþjóðaumhverfi Íslands og staðan í stjórn- og efnahagsmálum hér innanlands var allt önnur fyrir 17 árum en hún er nú. Rifjum upp: Allur heimurinn var að glíma við eftirmál fjármálahrunsins sem náði hámarki haustið 2008 og leiddi meðal annars til falls allra stærstu fjármálastofnana Íslands, skuldakreppu fyrirtækja og heimila og fjármagnshafta sem gerðu Ísland að fangelsi fyrir peninga. Staðan var ekki mikið skárri í mörgum helztu viðskiptalöndum Íslands og viðbrögð stjórnvalda í hverju landi voru að reyna að takmarka skaðann eftir megni. Harkaleg framganga stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi gagnvart Íslandi skýrðist af slíkum viðbrögðum; Bretar og Hollendingar töldu íslenzk stjórnvöld ábyrg fyrir innistæðutryggingum brezkra og hollenzkra viðskiptavina Landsbankans, sem höfðu rétt fyrir hrun lagt háar fjárhæðir inn á Icesave-hávaxtareikningana svonefndu, og kröfðu Íslendinga um greiðslu. Innan Evrópusambandsins geisaði mikil umræða um veikleika innistæðutryggingakerfis þess. Gengi íslenzku krónunnar hrundi og ríkisfjármál Íslands lutu gjörgæzlueftirliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF); útlendingur var ráðinn seðlabankastjóri. 

Í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar og kosninga vorið 2009 tók ný tveggja flokka ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur við völdum. Í kosningabaráttunni lá fyrir að það yrði verkefni nýrrar stjórnar að taka það sögulega skref að sækja um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þó var, þá eins og nú, mikill klofningur meðal þingmanna varðandi spurninguna um inngöngu í ESB. Sá klofningur var líka í röðum stjórnarþingmanna vinstri grænna. Og í ráðherraliði þess flokks, sem hafði mikið að segja. Jón Bjarnason, sem var landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra framan af kjörtímabilinu, gerði allt sem hann gat til að grafa undan aðildarsamningaferlinu þegar það var einu sinni komið í gang. Icesave-deilan þróaðist í að verða stærsta viðfangsefni ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og setti öll hin risaverkefnin í skuggann: Skuldakreppu heimilanna, endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins, aðildarviðræðurnar við ESB. 

Hvað varðar ytri aðstæður aðildarviðræðnanna á þessum tíma þá má rifja upp að Olli Rehn, þáverandi stækkunarmálastjóri ESB, var bjartsýnn á að Ísland gæti jafnvel „tekið framúr“ Króatíu og orðið næsta aðildarríki sambandsins innan tveggja til þriggja ára (þ.e. innan kjörtímabils Jóhönnustjórnarinnar). Svo fór þó ekki. Meiri tími en vænzt hafði verið fór í forstig viðræðnanna, þ.e. svokallað rýniferli, þar sem gildandi löggjöf Íslands og ESB var kerfisbundið borin saman. Icesave-deilan og deila um makrílveiðar (makríll synti í fyrsta sinn í stórum stíl inn í íslenzku lögsöguna sumarið 2010) torvelduðu framganginn. Þegar kom fram á veturinn 2012–-2013 var orðið dagljóst að ekki yrði unnt að ljúka aðildarviðræðunum fyrir næstu alþingiskosningar og formlegt hlé var gert á viðræðnunum. 

Úrskurður EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu í janúar 2013 reyndist Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem hafði harðast beitt sér í stjórnarandstöðu gegn Icesave-samningunum, mikil lyftistöng og honum skolaði beint í forsætisráðherrastól eftir kosningarnar um vorið. Sigmundur og Bjarni Benediktsson, formaður samstarfsflokksins í nýju ríkisstjórninni, ákváðu að efna ekki kosningaloforð um að kjósendur fengju að kjósa um það í þjóðaratkvæðagreislu hvort aðildarviðræðunum við ESB skyldi haldið áfram eða ekki. Sögðu í því felast „pólitískan ómöguleika“. Vegna þessa bar stjórnin aldrei tillögu um að hætta aðildarviðræðunum formlega undir Alþingi. Þess í stað sendi, eins og frægt varð, þáverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, bréf til Brussel 2014 þar sem stofnanir ESB voru beðnar um að líta ekki lengur á Ísland sem virkt umsóknarríki. Aðildarumsóknin var þó aldrei dregin til baka; umsóknin byggði á þingsályktun Alþingis frá sumrinu 2009 og því hefði þurft nýja ákvörðun Alþingis til að ógilda hana. 

Þegar hlé var gert á viðræðunum var hin tæknilega staða viðræðnanna sú sem rakin var í upphafi þessarar greinar (sjá nánar í samantekt utanríkisráðuneytisins). 

Staðan nú

Nú er staðan allt önnur. Þótt hagvaxtarhorfur hafi oft verið betri en þær eru þessa dagana í Evrópusambandsríkjunum í heild þá er þar engin sambærileg efnahagskreppa og var fyrir 17 árum. Alvarlegustu ógnirnar við efnahagsþróun Evrópu um þessar mundir eru ofurtollar Trumps (25% á allan útflutning frá ESB til Bandaríkjanna), samkeppnin frá Kína og hernaðarógnin frá Rússlandi. Áformin um stórfellda aukningu útgjalda evrópsku NATO-ríkjanna til varnarmála eru reyndar til þess fallin að ýta undir mældan hagvöxt í þeim löndum frekar en hitt, vegna mikilla fjárfestinga í varnartengdum iðnaði innan Evrópu. 

Engin Icesave-deila, engin makríldeila. Fjármagnshöftin úr sögunni fyrir löngu. Heimsfaraldur kominn og farinn. Bretar gengnir úr sambandinu (en sjá eftir því nú).  Innrásarstríð Rússa í Úkraínu hefur varað í nær fjögur og hálft ár. Bandaríkin hóta enn að hrifsa til sín yfirráð yfir Grænlandi. 

Hvað varðar ytri aðstæðurnar er sérstaklega vert að vekja athygli á „opnari faðmi“ ESB-ríkjanna gagnvart Íslandi um þessar mundir, sérstaklega í samanburði við stemninguna eins og hún var 2009–2013. Síðasta stækkun ESB átti sér stað árið 2013, þegar Króatía gekk inn. Hægt hefur gengið að semja við núverandi umsóknarríki, sem flest eru á vestanverðum Balkanskaga, auk Úkraínu, Moldóvu og Kákasuslanda. 

Þeir forsvarsmenn ESB og aðildarríkja þess sem hafa tjáð sig um mögulega endurnýjun aðildarumsóknar Íslands hafa allir tekið þeim möguleika fagnandi. Til dæmis sagði Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, að margt hefði breytzt síðan í síðustu viðræðum og að nýjar viðræður myndu taka mið af gjörbreyttu samhengi í alþjóðastjórnmálum (sjá frétt RUV.is frá 20. júlí). Barrot sagði einnig ótímabært að ræða mögulegar undanþágur fyrir Ísland frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Það væri fyrir samninganefndir ESB og Íslands að skera úr um, greiði íslenska þjóðin atkvæði með því að hefja aðildarviðræður á ný. 

Ráðherrar nokkurra annarra aðildarríkja ESB hafa tjáð sig á mjög svipuðum nótum á undanförnum mánuðum, s.s. utanríkisráðherra Þýzkalands og forsætisráðherra Póllands. Reyndar gekk forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, sem var forseti leiðtogaráðs ESB á árunum 2014–2019, svo langt að segja á sameiginlegum blaðamannafundi með starfssystur sinni Kristrúnu Frostadóttur í Varsjá í febrúar sl. að ESB yrði að sýna sveigjanleika í aðildarviðræðum við lítil ríki eins og Ísland. Hann hét líka öllu því liðsinni sem Pólverjum væri unnt að veita (sbr. frétt RÚV). 

Þau ummæli ráðamanna ESB sem hafa komið einna mest á óvart nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst komu frá núverandi sjávarútvegsmálastjóra ESB. Hann lét hafa eftir sér í viðtali við Financial Times stuttu eftir vinnuheimsókn til Íslands í apríl sl. (sbr. frétt Vísis.is), að ESB væri „opið fyrir því að veita Íslandi undanþágur í sjávarútvegsmálum i aðildarviðræðum. Það sé „klárlega svigrúm“ í málaflokknum.“

Samantekið: Aðstæður eru betri nú

Í hnotskurn er þetta að segja um samanburðinn á aðstæðum sem ríktu annars vegar þegar fyrst var sótt um aðild Íslands að ESB árið 2009 og þeim aðstæðum sem ríkja nú, 17 árum síðar: 

Ytri aðstæður eru gerbreyttar – alþjóðlega fjármálakreppan er langt að baki en þrýstingur á Evrópuríkin kemur bæði úr vestri (vegna gerbreyttra áherzlna núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum gagnvart bandamönnum sínum austanhafs) og úr austri – þar kemur margt til: Samkeppni frá Kína (t.d. í rafbílaframleiðslu), innrásarstríð Rússa í Úkraínu og afleiðingar þess, og loks afleiðingar stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Allt hefur þetta orðið til þess að þjappa aðildarþjóðum Evrópusambandsins þéttar saman. Víðtækur samhugur er um að efla varnargetu Evrópu og um samstöðu með Úkraínu (þótt á því séu undantekningar). Því er vilji til að flýta eins og unnt er aðildarferli Úkraínu og grannríkis þess Moldóvu. 

Nýr og sveigjanlegri hugsunarháttur er að festast í sessi meðal forystufólks Evrópusambandsins í stað þeirrar ferils-formfestu sem ríkti af hálfu þeirra sem önnuðust aðildarviðræðurnar við Ísland af hálfu ESB á tímabilinu 2009–2013. Í stuttu máli: Gagnvart Íslandi sýnir ESB nú „opnari faðm“ en áður. 


Næst: Í grein 4 verður greiningu haldið áfram á því hvað valkosturinn innganga í ESB myndi þýða fyrir Ísland og sjónum beint sérstaklega að sjávarútvegi og landbúnaði. 
#aðildarviðræður #esb #við


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26985/adildarvidraedur-vid-esb-tha-og-nu/

📰 Aðrar fréttir

Grunaður á­rásar­maður skotinn til bana í Ber­lín - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Grunaður á­rásar­maður skotinn til bana í Ber­lín - Vísir
Einn lét lífið og 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talinn í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu. BBC greinir frá og segir hinn grunaða hafa...
Lögregla skaut meintan árásarmann í Berlín til bana
📅 26.07.2026 👁️ 0
Lögregla skaut meintan árásarmann í Berlín til bana
Þýska lögreglan skaut til bana mann sem grunaður er um að hafa ekið á mannfjölda nálægt gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi. Ein kona lét lífið í árásinni...
Aðstæður óvenjulegar en góð stemning á Bræðslunni
📅 26.07.2026 👁️ 0
Aðstæður óvenjulegar en góð stemning á Bræðslunni
„Auðvitað er það ekkert launungarmál að það gekk yfir óveður meðan á þessu stóð í gærkvöldi og svo sem eins á föstudagskvöldið líka. Þannig að aðstæðu...
Ingibjörg harðlega gagnrýnd – „Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn því að Íslendingar yrðu spurðir um ESB og vilja frekar spyrja Trump“
📅 26.07.2026 👁️ 0
Ingibjörg harðlega gagnrýnd – „Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn því að Íslendingar yrðu spurðir um ESB og vilja frekar spyrja Trump“
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, hefur fengið yfir sig holskeflu gagnrýni eftir að hún gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að bera ekki aðil...
Íranar heita því að svara árás á Kaspíahafi
📅 26.07.2026 👁️ 0
Íranar heita því að svara árás á Kaspíahafi
Írönsk stjórnvöld heita því að svara árás Úkraínumanna á íranskt skip á Kaspíahafi, þar sem einn skipverji var drepinn og fleiri særðust. Þau sökuðu Ú...
Fer enn huldu höfði - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Fer enn huldu höfði - Vísir
Einn lét lífið, en 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talin í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu. Abdoul er talinn hafa verið stuðningsmaður...
Á­hrifa­valdur drepin eftir hún minntist á á­sakanir í garð eigin­mannsins - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Á­hrifa­valdur drepin eftir hún minntist á á­sakanir í garð eigin­mannsins - Vísir
Hún var vinsæl á samfélagsmiðlum þar sem hún veitti fylgjendum sínum ráð varðandi uppeldi barna. Fyrir rúmum mánuði síðar fór hún fram á að eiginmaður...
Hljóðmengun eykur líkur á parkinson
📅 26.07.2026 👁️ 1
Hljóðmengun eykur líkur á parkinson
Fólk sem býr við viðvarandi hljóðmengun frá umferð er líklegra til að þróa með sér parkinsonsjúkdóm. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar, þeirra...
Um­ræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Um­ræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? - Vísir
Þetta sagði Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Pallborðinu á Vísi í gær. Til umræðu var þjóðaratkvæ...
Yfirgáfu samfélög múslima og vilja nú endurflutning innflytjenda
📅 26.07.2026 👁️ 0
Yfirgáfu samfélög múslima og vilja nú endurflutning innflytjenda
Clara og Rigmor segja íslamskt félagslegt taumhald hafa breytt afstöðu þeirra til innflytjendamála – ákvörðunin um að stíga fram hefur kostað þær vini...
„Alltaf tor­tryggin gagn­vart boði um gull og græna skóga“ - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
„Alltaf tor­tryggin gagn­vart boði um gull og græna skóga“ - Vísir
Una Margrét Jónsdóttir rithöfundur greinir frá þessu á Facebook síðu sinni en slíkur svindlari setti sig í samband við hana undir dulnefninu Danielle ...
Trump með fullorðinsbleyju í viðtali 60 Minutes – „Hann hefur enga stjórn á hægðum sínum“
📅 26.07.2026 👁️ 1
Trump með fullorðinsbleyju í viðtali 60 Minutes – „Hann hefur enga stjórn á hægðum sínum“
Áhyggjur fólks af heilsu Donald Trump Bandaríkjaforseta aukast með hverjum deginum. Ekki aðeins andlegri heilsu hans sem virðist hraka með hverjum deg...
Hungarian Grand Prix result: Lando Norris wins from Max Verstappen with Kimi Antonelli third
📅 26.07.2026 👁️ 1
Hungarian Grand Prix result: Lando Norris wins from Max Verstappen with Kimi Antonelli third
Lando Norris takes his and McLaren's first victory of the year in a compelling Hungarian Grand Prix.
Sólborgir vilja reisa brottvísunarstöð úr gámaeiningum á Rockville-svæðinu
📅 26.07.2026 👁️ 1
Sólborgir vilja reisa brottvísunarstöð úr gámaeiningum á Rockville-svæðinu
Suðurnesjabær hafnaði fyrir helgi beiðni Sólborga ehf. um milligöngu vegna afnota af Rockville-svæðinu vegna brottvísunarstöðvar stjórnvalda. Leit ste...
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin
📅 26.07.2026 👁️ 1
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin Þing­mað­ur Mið­flokks­ins seg­ir „mjög mið­ur“ að ekki hafi ver­ið fund­að með Banda­ríkj­un­um um af...
Lá undir grun um að hafa gefið þeirri látnu of stóran skammt af morfíni
📅 26.07.2026 👁️ 1
Lá undir grun um að hafa gefið þeirri látnu of stóran skammt af morfíni
Starfsmaður á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum var handtekinn eftir að samstarfsmaður lýsti yfir grunsemdum um að hann hefði ...
Orðið á götunni: Sagan sem ekki má segja
📅 26.07.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Sagan sem ekki má segja
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis á Ísafirði, lýsti því yfir á dögunum að Evrópusambandið hamlaði nýsköpun, ekki síst í lækningavöruge...
„Eins og ein­hverjir fá­vitar á gólfinu, korter í að grenja“ - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
„Eins og ein­hverjir fá­vitar á gólfinu, korter í að grenja“ - Vísir
Þetta segja þær Perla Sól Guðjónsdóttir, Ragna Sól Ragnarsdóttir, Emelía Ósk Kristjánsdóttir og Marta Sjonja Maríusdóttir sem eru allar nýlega orðnar ...
Teenager charged over record Channel crossing on 'mega dinghy'
📅 26.07.2026 👁️ 0
Teenager charged over record Channel crossing on 'mega dinghy'
Chan Mathok Atak, 19, is accused of endangering another during a journey by sea to the UK.
Ryan Gosling to join Marvel Cinematic Universe as Ghost Rider
📅 26.07.2026 👁️ 1
Ryan Gosling to join Marvel Cinematic Universe as Ghost Rider
During a surprise announcement at San Diego Comic-Con, the actor says the character is one he has "wanted to play for a very long time".
Meghan calls Prince Harry 'a charmer' during MasterChef Australia appearance
📅 26.07.2026 👁️ 1
Meghan calls Prince Harry 'a charmer' during MasterChef Australia appearance
The duke surprises his wife with a video call during her guest judge appearance on MasterChef Australia.
Þungt yfir á sorgarsamkomu í Berlín
📅 26.07.2026 👁️ 1
Þungt yfir á sorgarsamkomu í Berlín
„Það er þungt yfir þessarri samkomu og það byrjaði að rigna nánast um leið og dagskráin hófst, þannig að stemningin er eftir því,“ sagði Alda Vigdís S...
Una varar við svindlara – „Bréfið var orðað eins og viðkomandi hefði í raun og veru lesið bókina“
📅 26.07.2026 👁️ 1
Una varar við svindlara – „Bréfið var orðað eins og viðkomandi hefði í raun og veru lesið bókina“
Una Margrét Jónsdóttir, rithöfundur og dagskrárgerðarkona hjá RÚV, varar við svindlara sem herjar á rithöfunda. Fékk hún nýlega bréf sem henni fannst ...
Varað við hundapassara á höfuðborgarsvæðinu – Svaf áfengissvefni þegar eigandinn kom heim og aðkoman var ófögur
📅 26.07.2026 👁️ 1
Varað við hundapassara á höfuðborgarsvæðinu – Svaf áfengissvefni þegar eigandinn kom heim og aðkoman var ófögur
Hundaeigandi sem keypt hafði þjónustu hundapassara á höfuðborgarsvæðinu og trúað þeirri konu fyrir hundi sínum á meðan hún var að heiman fékk símtal f...
Arna greinir frá ofbeldi sem hún sat ein með í áratugi – „Þess vegna er svo mikilvægt að við höfum göngu eins og Druslugönguna“
📅 26.07.2026 👁️ 1
Arna greinir frá ofbeldi sem hún sat ein með í áratugi – „Þess vegna er svo mikilvægt að við höfum göngu eins og Druslugönguna“
Arna Magnea Danks, leikkona og aktívisti, greindi eftir Druslugönguna í gær frá hrottalegu ofbeldi sem hún varð fyrir þegar hún var barn og þegar hún ...
Búin með þriðjunginn og borgarstjóri er bjartsýn
📅 26.07.2026 👁️ 1
Búin með þriðjunginn og borgarstjóri er bjartsýn
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lokið sjö af 31 verkefni sem á að ljúka á 100 dögum, fyrir 10. september. Mörg stór verkefni eru eftir á...
Búin með fjórðunginn og borgarstjóri er bjartsýn
📅 26.07.2026 👁️ 1
Búin með fjórðunginn og borgarstjóri er bjartsýn
Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lokið sjö af 31 verkefni sem á að ljúka á 100 dögum, fyrir 10. september. Mörg stór verkefni eru eftir á...
Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt - Vísir
Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar í málinu sem var kveðinn upp í byrjun febrúar, skömmu eftir að málið kom upp í janúar síðastliðnum, en var bir...
Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí - Vísir
Einn lét lífið þegar Abdul Ballout ók á hóp fólks þar sem verið var að halda upp á hinsegin daga og er fjöldi særðra kominn upp í 25. Maðurinn er 21 á...
Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín
📅 26.07.2026 👁️ 1
Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín
Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín Ugla StefaníaUgla hefur áhyggjur Mynd: Móa Hjartardóttir Ugla Stefanía Kristjönud...
Una varar vð svindlara – „Bréfið var orðað eins og viðkomandi hefði í raun og veru lesið bókina“
📅 26.07.2026 👁️ 1
Una varar vð svindlara – „Bréfið var orðað eins og viðkomandi hefði í raun og veru lesið bókina“
Una Margrét Jónsdóttir, rithöfundur og dagskrárgerðarkona hjá RÚV, varar við svindlara sem herjar á rithöfunda. Fékk hún nýlega bréf sem henni fannst ...
Stranda­glópar á Spáni og vont veður á Brennslunni - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Stranda­glópar á Spáni og vont veður á Brennslunni - Vísir
Ástæða þess að tvær konur voru grunaðar í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum var framburður sams...
Three injured after car crashes into a wall in Las Chafiras
📅 26.07.2026 👁️ 1
Three injured after car crashes into a wall in Las Chafiras
Three people were injured, one of them seriously, after the car they were travelling in crashed into a wall in Las Chafiras on Thursday evening, accor...
Stórfelld líkamsárás á Hjarta Hafnarfjarðar
📅 26.07.2026 👁️ 1
Stórfelld líkamsárás á Hjarta Hafnarfjarðar
Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, þar af voru tvær í Hafnarfirði og ein í Kópavogi. Tvö málanna varða heimiliso...
Einn handtekinn í tengslum við árásina í Berlín
📅 26.07.2026 👁️ 1
Einn handtekinn í tengslum við árásina í Berlín
Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina í gleðigöngunni í Berlín í gær. Frá þessu er greint í þýskum fjölmiðlum.Ekið var inn í mannfjölda m...
Water supply problem affects both terminals at Gatwick Airport
📅 26.07.2026 👁️ 1
Water supply problem affects both terminals at Gatwick Airport
Bottled water is being handed out to passengers and staff while the issue is investigated.
Gatwick Airport left without running water at both terminals
📅 26.07.2026 👁️ 1
Gatwick Airport left without running water at both terminals
Bottled water is being handed out to passengers and staff while the issue is investigated.
Streaming, signal, and what UK Expats actually do when the weather turns in the Canaries
📅 26.07.2026 👁️ 1
Streaming, signal, and what UK Expats actually do when the weather turns in the Canaries
The weather in the Canary Islands is more variable than most UK expats expected before moving to the archipelago. A Tenerife January afternoon can be ...
Guðni Aðalsteinsson. Áfram vöntun á atvinnuhúsnæði og uppbyggingu – vill stærri hluta virðiskeðjunnar
📅 26.07.2026 👁️ 1
Guðni Aðalsteinsson. Áfram vöntun á atvinnuhúsnæði og uppbyggingu – vill stærri hluta virðiskeðjunnar
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur áhuga á að útvíkka starfsemi félagsins og sér framtíðina fremur sem vettvang þekkingar-...
Slagsmál á Bræðslunni og gestir leituðu skjóls vegna óveðurs
📅 26.07.2026 👁️ 1
Slagsmál á Bræðslunni og gestir leituðu skjóls vegna óveðurs
Gestir á Bræðslunni á Borgarfirði eystra leituðu skjóls í yfirbyggðri sparkhöll í bænum vegna roks og rigningar í nótt.„Liðlega tvö leituðu fyrstu ges...
Fjöl­skyldur skyldar eftir á Alicante um miðja nótt - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Fjöl­skyldur skyldar eftir á Alicante um miðja nótt - Vísir
Aðrir urðu eftir á flugvellinum. Farþegi sem blaðamaður ræddi við hefur eftir flugstjóra flugvélarinnar að 93 farþegar hafi fengið að fara til Íslands...
Fjöl­skyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Fjöl­skyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt - Vísir
Aðrir urðu eftir á flugvellinum. Farþegi sem blaðamaður ræddi við hefur eftir flugstjóra flugvélarinnar að 93 farþegar hafi fengið að fara til Íslands...
Fokin tjöld og slags­mál á Bræðslunni - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Fokin tjöld og slags­mál á Bræðslunni - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að um tíuleytið í gærkvöldi hafi borist upplýsingar um að skúta í höfninni væri mögulega að losna. K...
Yfir 300.000 hafa þurft yfirgefa heimili sín vegna elda
📅 26.07.2026 👁️ 1
Yfir 300.000 hafa þurft yfirgefa heimili sín vegna elda
Yfir 300.000 hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógarelda. Áætlað er að um 420 ferkílómetra svæði hafi orðið eldi að br...
16 ára piltur frá Marokkó í gæsluvarðhald – grunaður um að hafa nauðgað áttræðri konu
📅 26.07.2026 👁️ 1
16 ára piltur frá Marokkó í gæsluvarðhald – grunaður um að hafa nauðgað áttræðri konu
Sextán ára piltur, sem sagður er fæddur árið 2009 í Marokkó, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Frakklandi vegna gruns um að hafa nauðgað konu ...
Testell eins ástsælasta söngvara íslensku þjóðarinnar á uppboði
📅 26.07.2026 👁️ 1
Testell eins ástsælasta söngvara íslensku þjóðarinnar á uppboði
Testell sem var í eigu tónlistargoðsagnarinnar Ragnars Bjarnasonar heitins er nú á uppboði hjá Fold uppboðshúsi. Uppboðinu lýkur þriðjudaginn og má þa...
„Við viljum fá hundana okkar aftur“
📅 26.07.2026 👁️ 1
„Við viljum fá hundana okkar aftur“
„Við viljum fá hundana okkar aftur,“ segir ungur heimilisfaðir sem var vörslusviptur hundunum sínum tveimur, Vinu og Myrkvu, í september í fyrra. Vina...
Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnu­slys í Kópa­vogi - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnu­slys í Kópa­vogi - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir. Í dagbókinni segir einnig frá þremur tilk...
Rannsaka andlát stúlku sem lést eftir tilraunagenameðferð
📅 26.07.2026 👁️ 1
Rannsaka andlát stúlku sem lést eftir tilraunagenameðferð
Sex ára kínversk stúlka lést um viku eftir að hún gekkst undir tilraunakennda genameðferð í fyrra. Læknadeild Jiao Tong-háskólans í Shanghai hefur and...
Wes Streeting: UK not intimidated by Iran's 'sabre rattling'
📅 26.07.2026 👁️ 1
Wes Streeting: UK not intimidated by Iran's 'sabre rattling'
The defence secretary warns Britain "stands ready to respond to any attacks Iran wishes to wage against this country or our allies".